Bæjarstjórnarfundir
Íbúafundir
Gjaldskrár
Götukort
Laus störf
Sorphirða
Sjónvarp
Nemakort
2011-2012
Mjög þungfært hefur verið á Álftanesinu í morgunn og voru foreldrar meðal annars hvattir til að halda börnum sínum heima vegna veðurs. Nokkrir starfsmenn bæjarins tóku nokkrar myndir af nýmynduðum fjöllum og hryggjum eftir blástur næturinnar.
Sveini Bjarnasyni (Denna) var veitt viðurkenning, við hátíðlega athöfn við sama tækifæri og íþróttamaður Álftaness var kjörinn. Denni hefur séð um brennur á Álftanesi síðustu áratugi og með elju sinni veitt Álftnesingum birtu og yl í orðsins fyllstu merkingu.
Alls voru 8 tilnefningar sendar inn og hlutu allir viðurkenningu sem voru tilnefndir. Helga María Vilhjálmsdóttir var valin íþróttamaður Álftaness og er þetta annað árið í röð sem hún vinnur þann titil. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir eflingu almenningsíþrótta á Álftanesi og fengu aðstandendur íþróttaskóla barnanna og 8. flokks barna hjá UMFÁ þær viðurkenningar.
Lið Álftaness beið lægri hlut gegn liði Garðabæjar í Útsvari föstudagskvöldið 20. janúar, með 56 stigum gegn 82 stigum.
Í liði Álftaness eru: Einar Sverrir Tryggvason, Tryggvi M. Baldvinsson og Soffía Sæmundsdóttir.
Enn er möguleiki á því að ná sér í miða á hið frábæra þorrablót Kvenfélags Álftaness og Lionsklúbbs Álftaness sem haldið verður þann 28. janúar 2012 í sal Íþróttamiðstöðvar Álftaness
Miðvikudaginn 18.janúar verður útnefndur Íþróttamaður Álftness fyrir árið 2011.
Alls voru 8 tilnefningar sendar inn og munu allir sem tilnefndir voru hljóta viðurkenningu.
Eftirfarandi íþróttamenn voru tilnefndir...
Netpóstur