Fréttasíða
Niðurstöður skoðanakönnunar um áhuga íbúa á Álftanesi á sameiningu við annað sveitarfélag
	<description>Á 76. fundi bæjarstjórnar, sem haldinn var hinn 17. desember 2009, var samþykkt samkomulag bæjarstjórnar og Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir því að bæjarstjórn hefji þegar viðræður við önnur sveitarfélög um hugsanlega sameiningu. Til undirbúnings slíkum viðræðum hefur bæjarstjórn talið sér skylt og rétt að kanna hug íbúa til sameiningar.
Bæjarstjórn samþykkti á 80. fundi sínum, hinn 25. febrúar sl., að leggja fyrir íbúa skoðanakönnun samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars 2010, þar sem íbúum gæfist kostur á að tjá hug sinn til sameiningar sveitarfélagsins við annað sveitarfélag. 
Niðurstöður skoðanakönnunar um áhuga íbúa á Álftanesi um sameinungu liggja fyrir. Heimil þátttaka var öllum þeim sem áttu heima á Álftanesi á kosningadegi og höfðu náð 18 ára aldri, samtals 1777 einstaklingar. Þátt tóku 1134 einstaklingar og er það 64% þátttökuhlutfall. 
Niðurstöður könnunarinnar er að finna hér.  
Bæjarstjórn vill koma þökkum á framfæri til allra þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnuninni.</description>
Gjaldskrá leikskóla
	<description>Á 80. fundi bæjarstjórnar sem haldinn var fimmtudaginn 25. febrúar sl. var fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2010 til umræðu.  Ýmsar hagræðingaraðgerðir og gjaldskrárbreytingar voru þar með staðfestar af bæjarstjórn.</description>
Niðurstöður skoðanakönnunar kynntar á þriðjudaginn
	<description>Góð þátttaka var í skoðanakönnun bæjarstjórnar á hug íbúa til sameiningar, sem haldin var samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni laugardaginn 6. mars sl. Þátttakan er í samræmi við þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni en endanlegur fjöldi verður kynntur samhliða niðurstöðum skoðanakönnunarinnar. Niðurstöður skoðanakönnunarinnar verða aðgengilegar</description>
Skoðanakönnun laugardaginn 6. mars n.k. í Álftanesskóla
Bæjarstjórn samþykkti á 80. fundi, hinn 25. febrúar sl., að leggja fyrir íbúa skoðanakönnun samhliða boðaðri þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010 í Álftanesskóla. Í skoðanakönnuninni mun íbúum gefast kostur á að tjá hug sinn til þess, annars vegar hvort viðkomandi sé hlynntur því að Sveitarfélagið Álftanes sameinist öðru sveitarfélagi og hins vegar ef til sameiningar kæmi hvaða sveitarfélagi viðkomandi teldi ákjósanlegast að sameinast. Sýnishorn af könnunaratriðum og bréfi er Álftnesingum var sent í hús er að finna í tengli hér neðar í fréttinni.. 
Við framsetningu könnunarinnar hefur verið</description>
Heimagreiðslur og íþrótta- og tómstundastyrkur 2010
	<description>Á 80. fundi bæjarstjórnar sem haldinn var fimmtudaginn 25. febrúar sl. var fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2010 til umræðu.  Fjölmargar hagræðingartillögur voru þar með staðfestar af bæjarstjórn.
Eftirfarandi tillögur m.a. voru staðfestar af bæjarstjórn:</description>
Umræður utan dagskrár á Alþingi
	<description>Umræður utan dagskrár um fjárhagstöðu Álftaness og annarra sveitarfélaga voru fyrr í dag á Alþingi.  Hljóð- og myndupptökur af umræðunni er hægt að nálgast á vef Alþingis.</description>
Fjárhaldsstjórn tekur til starfa
	<description>Þann 9. febrúar s.l. tók fjárhaldsstjórn fyrir Sveitarfélagið Álftanes formlega til starfa. Auglýsing um skipan fjárhaldsstjórnarinnar birtist í Stjórnartíðindum sama dag.
Fjárhaldsstjórnina skipa: 
·        Andri Árnason hæstaréttarlögmaður, formaður, 
·        Elín Guðjónsdóttir viðskiptafræðingur,  
·        Haraldur L. Haraldsson hagfræðingur. 
Ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, Kristján L. Möller, skipaði</description>
Fjárhaldsstjórn skipuð
	<description>Bæjarstjórn Álftaness hefur nú móttekið tilkynningu ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála. Í tilkynningunni kemur fram að ráðherra hefur tekið ákvörðun um að setja sveitarfélaginu fjárhaldsstjórn, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Mun fjárhaldsstjórnin verða skipuð hið fyrsta og taka við fjárhaldsstjórn sveitarfélagsins. 
Í ákvörðun ráðherra er aukinheldur</description>
Tillögur bæjarstjórnar um fjárhagslegar aðgerðir
	<description>Sveitarfélagið Álftanes glímir við alvarlega fjárhagserfiðleika og gerði bæjarstjórnÁlftaness sérstakt samkomulag, dags. 17. desember 2010, við Eftirlitsnefnd meðfjármálum sveitarfélaga (EFS) um fjárhagslegar aðgerðir og eftirlit.Í samkomulaginu kemur fram að með vísan til 2. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlagaog með hliðsjón af tillögum nefndarinnar er sveitarfélaginu veittur frestur til 20.janúar 2010, síðar framlengt til 27. janúar sama ár, til að koma fjármálumsveitarfélagsins í viðunandi horf. 
Samkomulaginu er ætlað að skapa</description>
Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness
Íþróttamaður Álftaness 2009
	<description>Arnar Már Björgvinsson knattspyrnumaður var valin Íþróttamaður Álftaness 2009. Arnar Már átti glæsilegt tímabil með úrvalsdeildarliði Stjörnunnar auk þess að leika með u21 árs landsliði Íslands og er vel að titlinum kominn.</description>
Fjölmennur íbúafundur 17. desember s.l.
	<description>Fjölmenni var á íbúafundi sem haldinn var þann 17. desember s.l., vegna slæmrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Fundurinn hófst á því að Pálmi Másson, bæjarstjóri, fór yfir aðdraganda</description>
Íbúafundur fimmtudaginn 17. des. kl. 20 í Íþróttahúsinu
	<description>Þann 4. nóvember s.l. var samþykkt við aðra umræðu, á 74. fundi bæjarstjórnar, að senda inn tilkynningu til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga (EFS), með vísan til 75. gr. sveitarstjórnarlaga. Í kjölfarið lét Eftirlitsnefndin vinna rannsókn</description>
Jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi
	<description>Foreldrafélag Álftanesskóla, foreldrafélög leikskólanna, félagasamtök á Álftanesi og sveitarfélagið Álftanes stóðu fyrir glæsilegum jóla- og góðgerðardegi þann 12. desember sl. þar sem bæjarbúum gafst tækifæri til að koma saman og láta gott af sér leiða.</description>
Piparkökuhúsasamkeppni og Ratleikur
	<description>Vinnigshafar í Piparkökuhúsasamkeppni og Ratleik sem haldin var á Jóla- og góðgerðardeginum síðast liðinn laugardag, eru eftirfarandi:</description>
Ljósmyndakeppni FoNÁ
	<description>Í andyri Álftaneslaugar er verið að sýna myndir frá ljósmyndakeppninni "Ljós og skuggi" sem Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness efndi til í nóvember. Tólf þátttakendur skiluðu inn þrem myndum hver. Ein mynd frá hverjum þátttakenda hangir uppi í andyri Álftaneslaugar, en hægt er að skoða allar myndirnar á vefsíðunni http://www.fuglanes.com.</description>
Tilkynning til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga
	<description>Á aukafundi bæjarstjórnar Álftaness, sem haldinn var þann 4. nóvember s.l., fór fram seinni umræða um tilkynningu bæjarstjórnar til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga (EMFS), sbr. 75. gr. sveitarstjórnarlaga. Samþykkt var að fela bæjarstjóra að...</description>
Tilkynning til Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga, sbr. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
	<description>Á  73. fundi bæjarstjórnar Álftaness, miðvikudaginn 28. október, var samþykkt við fyrri umræðu tillaga meirihluta bæjarstjórnar um að senda Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga tilkynningu í samræmi við ákvæði 75. gr. sveitarstjórnarlaga. Tillagan þarfnast...</description>
Viðbragðsáætlun sveitafélagsins samþykkt
	<description>Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa útbúið viðbragðsáætlun vegna H1N1 flensunnar.  Viðbragðsáætlun Sveitarfélagsins Álftaness var samþykkt á 112. fundi bæjarráðs og er aðgengileg hér á heimasíðunni.</description>
Frumkvöðlasetrið Kveikjan
	<description>Frumkvöðlasetrið Kveikjan var formlega opnuð 12. október sl. að Strandgötu 11 í Hafnarfirði. Kveikjan er samstarfsverkefni Hafnafjarðarbæjar, Garðabæjar, Sveitarfélagsins Álftaness og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.  Í Kveikjunni er einstaklingum og sprotafyrirtækjum veitt aðstaða og stuðningur til að vinna að viðskiptahugmyndum undir faglegri handleiðslu sérfræðinga Impru á Nýsköpunarmiðstöð.  Þeir Álftnesingar sem óska eftir aðstöðu í Kveikjunni eru hvattir til að hafa samband við Nýsköpunarmiðstöð Íslands.</description>