Á 76. fundi bæjarstjórnar, sem haldinn var hinn 17. desember 2009, var samþykkt samkomulag bæjarstjórnar og Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir því að bæjarstjórn hefji þegar viðræður við önnur sveitarfélög um hugsanlega sameiningu. Til undirbúnings slíkum viðræðum hefur bæjarstjórn talið sér skylt og rétt að kanna hug íbúa til sameiningar.
Bæjarstjórn samþykkti á 80. fundi sínum, hinn 25. febrúar sl., að leggja fyrir íbúa skoðanakönnun samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars 2010, þar sem íbúum gæfist kostur á að tjá hug sinn til sameiningar sveitarfélagsins við annað sveitarfélag.
Niðurstöður skoðanakönnunar um áhuga íbúa á Álftanesi um sameinungu liggja fyrir. Heimil þátttaka var öllum þeim sem áttu heima á Álftanesi á kosningadegi og höfðu náð 18 ára aldri, samtals 1777 einstaklingar. Þátt tóku 1134 einstaklingar og er það 64% þátttökuhlutfall.
Niðurstöður könnunarinnar er að finna hér.
Bæjarstjórn vill koma þökkum á framfæri til allra þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnuninni.