Fréttatilkynning, dags. 28. október 2009:
Á 73. fundi bæjarstjórnar Álftaness, miðvikudaginn 28. október, var samþykkt við fyrri umræðu tillaga meirihluta bæjarstjórnar um að senda Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga tilkynningu í samræmi við ákvæði 75. gr. sveitarstjórnarlaga. Tillagan þarfnast tveggja umræðna í bæjarstjórn og verður síðari umræða um málið 4. nóvember n.k.
Undanfarnar vikur hefur verið unnið að greiningu á stöðu fjármála hjá Sveitarfélaginu Álftanesi. Þessi vinna var unnin af bæjarstjóra, fjármálastjóra og sérfræðingi frá KPMG, ásamt fulltrúum meirihluta bæjarstjórnar.
Að lokinni þessari greiningarvinnu er það mat meirihluta bæjarstjórnar, bæjarstjóra, fjármálastjóra og sérfræðings KPMG að óska eftir aðkomu Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, með vísan til 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
Í 75. grein sveitarstjórnarlaga segir:
„Komist sveitarfélag í fjárþröng þannig að sveitarstjórn telur sér eigi unnt að standa í skilum skal hún tilkynna það til eftirlitsnefndar skv. 74. gr. Ákvörðun um slíka tilkynningu skal tekin eftir tvær umræður í sveitarstjórn.
Eftirlitsnefnd skal þá tafarlaust láta fara fram rannsókn á fjárreiðum og rekstri sveitarfélagsins og leggja síðan fyrir sveitarstjórn að bæta það sem áfátt kann að reynast innan hæfilegs frests.
Eftirlitsnefnd er heimilt að grípa til aðgerða skv. 2. mgr. hafi sveitarstjórn ekki sinnt aðvörun nefndarinnar skv. 2. mgr. 74. gr. eða ef nefndin telur viðbrögð sveitarstjórnar í framhaldi af aðvörun nefndarinnar ófullnægjandi.
Komi í ljós við rannsókn að fjárhagur sveitarfélags sé slíkur að það geti ekki með eðlilegum rekstri staðið straum af lögboðnum útgjöldum eða öðrum skuldbindingum sínum er ráðuneytinu heimilt að tillögu eftirlitsnefndar að veita sveitarfélaginu styrk eða lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til þess að koma fjárhag sveitarfélagsins á réttan kjöl með þeim skilyrðum sem ráðuneytið setur. Ráðuneytið getur heimilað eða lagt fyrir sveitarstjórn í því tilviki sem hér um ræðir og að tillögu eftirlitsnefndar að leggja álag á útsvör og fasteignaskatta sem nemi allt að 25%.“
Það er mat meirihluta bæjarstjórnar Álftaness að verði ekkert að gert, eða gripið til viðeigandi ráðstafana varðandi fjármál bæjarsjóðs, muni stefna í verulegan greiðsluvanda hjá sveitarfélaginu. Íbúum sveitarfélagsins mun verða gerð frekari grein fyrir stöðu málsins á opnum fundi um miðjan nóvember.
Ákvörðun þessi er þungbær fyrir meirihluta bæjarstjórnar en er tekin að vandlega athuguðu máli og er gerð með hagsmuni Álftnesinga að leiðarljósi til lengri framtíðar.
Meðfylgjandi lykiltölur úr rekstri 2004 - 2009 má sjá hér.
Bæjarstjórinn á Álftanesi,
Pálmi Þór Másson