15. desember 2009 22:32
Íbúafundur fimmtudaginn 17. des. kl. 20 í Íþróttahúsinu
Þann 4. nóvember s.l. var samþykkt við aðra umræðu, á 74. fundi bæjarstjórnar, að senda inn tilkynningu til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga (EFS), með vísan til 75. gr. sveitarstjórnarlaga. Í kjölfarið lét Eftirlitsnefndin vinna rannsókn á rekstri og fjárreiðum sveitarfélagsins. Niðurstaða rannsóknar var kynnt á fundi Eftirlitsnefndarinnar með bæjarstjórn þann 9. desember s.l.
Í tilefni af skýrslu um rannsókn á fjárreiðum og rekstri Sveitarfélagsins Álftaness verður haldinn íbúafundur fimmtudaginn 17. desember n.k. kl. 20 í sal íþróttahússins. Á fundinum verður farið yfir nefnda skýrslu. aukinheldur gefst íbúum kostur á að beina spurningum til bæjarfulltrúa og fulltrúa EFS.
Skýrslu EFS um rannsókn á fjárreiðum og rekstri Sveitarfélagsins Álftaness má nálgast hér.