21. desember 2009 10:01
Fjölmennur íbúafundur 17. desember s.l.
Fjölmenni var á íbúafundi sem haldinn var þann 17. desember s.l., vegna bágrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Fundurinn hófst á því að Pálmi Másson, bæjarstjóri, fór yfir aðdraganda þess að tilkynning, á grundvelli 75. gr. sveitarstjórnarlaga, var send til Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga (EFS). Því næst fór Ólafur Nilsson, formaður EFS, yfir störf nefndarinnar og aðkomu nefndarinnar að sveitarfélaginu. Að því loknu fór Garðar Jónsson, sérfræðingur hjá R3, yfir rannsókn þá er hann vann fyrir EFS um fjárreiður og rekstur sveitarfélagsins. Að lokum gerði bæjarstjóri grein fyrir samkomulagi, því er samþykkt var á 76. fundi bæjarstjórnar, milli EFS og bæjarstjórnar Álftaness.
Þegar frummælendur höfðu lokið máli sínu gafst íbúum kostur á að beina spurningum sínum til bæjarfulltrúa, frummælenda og fulltrúa frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
Fjölmennum íbúafundi lauk síðan um kl. 23 en fundurinn hafði verði áætlaður til kl. 22.
Upplýsingar um fyrirlestra er fluttir voru á fundinum má finna hér ásamt upptöku af fundinum.