23. janúar 2010 19:45
Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness
Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness sendi nýlega frá sér metnaðarfulla dagskrá fyrir árið 2010, með áætlun um mánaðarlega viðburði. Dagskránni var dreift með tölvupósti til þeirra sem hafa skráð sig á póstlista félagsins, en er líka gerð aðgengileg <hér> og verður hengd upp til auglýsingar á staði þar sem fjöldi fólks venur komu sína, s.s. í anddyri Álftaneslaugar.
Öllum er velkomið að taka þátt í auglýstri dagskrá félagsins, endurgjaldslaust.
Fyrsti dagskráliðurinn er fyrirlestur um vetrartalningar fugla, sem Guðmundur A. Guðmundsson fuglafræðingur ætlar að flytja í Haukshúsi sunnudaginn 24. janúar og hefst klukkan 13:15. Vetrartalningar hafa verið stundaðar árlega á Íslandi í rúma hálfa öld og niðurstöður frá Álftanesi og nágrenni eru til frá megnið af þeim tíma. Ef veður leyfir þá mun Guðmundur leiðbeina þeim sem vilja kíkja eftir fuglum í Helguvík og við Skógtjarnarósinn, eftir fyrirlesturinn.
Athygli er vakin á að FoNÁ hefur opnað nýja vefsíðu, http://www.fuglanes.com/ sem
mun yfirtaka hlutverk fyrra vefsvæðis á næstunni.