Bjarnastaðir
225 Álftanes
Sími 550 2300 - fax 550 2309
Minnsta letur
Miðstærð leturs
Stærsta letur
Atburðadagatal
28
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
12
15
16
19
20
21
22
23
25
26
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Atburðadagatal
FORSÍÐA
STJÓRNSÝSLA
ÞJÓNUSTA
UMHVERFI OG SKIPULAG
MANNLÍF OG MENNING
EYÐUBLÖÐ
Ýmsar myndir
Skip Navigation Links
Prenta
27. janúar 2010 11:14

Tillögur bæjarstjórnar um fjárhagslegar aðgerðir

Sveitarfélagið Álftanes glímir við alvarlega fjárhagserfiðleika og gerði bæjarstjórn
Álftaness sérstakt samkomulag, dags. 17. desember 2010, við Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga (EFS) um fjárhagslegar aðgerðir og eftirlit.

Í samkomulaginu kemur fram að með vísan til 2. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga
og með hliðsjón af tillögum nefndarinnar er sveitarfélaginu veittur frestur til 20.
janúar 2010, síðar framlengt til 27. janúar sama ár, til að koma fjármálum
sveitarfélagsins í viðunandi horf.

Samkomulaginu er ætlað að skapa bæjarstjórn svigrúm til að endurskipuleggja
fjárhag sveitarfélagsins og að lögð verði fram áætlun um að eigi síðar en á árinu
2013 verði reksturinn hallalaus.

Á 79. fundi bæjarstjórnar Álftaness, 26. janúar 2010, voru samþykkt drög að
skýrslu um „Tillögur bæjarstjórnar um fjárhagslegar aðgerðir“ á grundvelli 2. gr.
samkomulags við EFS.

Skýrslan lýsir tillögum bæjarstjórnar um aðgerðir til að koma fjármálum
sveitarfélagsins í viðunandi horf. Tillögur um gerðir skiptast í þrjá megin flokka,
þ.e. aðgerðir í rekstri, aðgerðir gagnvart skuldum við lánastofnanir og aðgerðum
gagnvart skuldbindandi samningum.

Við gerð rekstraráætlunar voru allir rekstrarliðir skoðaðir og leitast við að ganga
eins langt og hægt er í lækkun kostnaðar, þó þannig að ekki yrði gengið of nærri
grunnþjónustu sveitarfélagsins.

Skuldbindandi samningar voru skoðaðir og leitað leiða til þess að minnka eða
fella niður skuldbindingar sveitarfélagsins á grundvelli samninganna.
Farið ítarlega yfir skuldir sveitarfélagsins og gerðar eru tillögur um hvernig
mætti lágmarka greiðslubyrði allra þeirra lána sem hægt er að skuldbreyta. 

 

Skýrsluna má finna hér