8. febrúar 2010 15:35
Fjárhaldsstjórn skipuð
Bæjarstjórn Álftaness hefur nú móttekið tilkynningu ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála. Í tilkynningunni kemur fram að ráðherra hefur tekið ákvörðun um að setja sveitarfélaginu fjárhaldsstjórn, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Mun fjárhaldsstjórnin verða skipuð hið fyrsta og taka við fjárhaldsstjórn sveitarfélagsins.
Í ákvörðun ráðherra er aukinheldur lagt til að samkomulag verði gert milli fjárhaldsstjórnar og bæjarstjórnar Álftaness en ekki eru fordæmi fyrir slíku samkomulagi. Mikilvægt er að í samkomulagi þessu verði samstarf bæjarstjórnar og fjárhaldsstjórnar skýrgreint, svo vinna megi hratt og fumlaust í málefnum Álftnesinga.
Hér er fréttatilkynningin í heild sinni