AUGLÝSING
um staðfestingu á breyttu stjórnsýsluheiti Bessastaðahrepps og heiti sveitarstjórnar, byggðarráðs og framkvæmdastjóra Sveitarfélagsins Álftaness.
Með vísan til 4. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, með síðari breytingum, og að fenginni umsögn örnefnanefndar hefur ráðuneytið í dag staðfest ákvörðun hreppsnefndar Bessastaðahrepps frá 20. apríl 2004, um breytingu á nafni sveitarfélagsins.
Nýtt heiti sveitarfélagsins er Sveitarfélagið Álftanes. Frá birtingu auglýsingar þessarar nefnist sveitarstjórn sveitarfélagsins bæjarstjórn, byggðarráð verður bæjarráð og framkvæmdastjóri bæjarstjóri, sbr. 11. gr. sveitarstjórnarlaga.
Félagsmálaráðuneytinu, 4. júní 2004.
Árni Magnússon.
Guðjón Bragason.