Bjarnastaðir
225 Álftanes
Sími 550 2300 - fax 550 2309
Minnsta letur
Miðstærð leturs
Stærsta letur
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
16
17
18
19
25
26
28
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Atburðadagatal

 

 

 

  

 

 

FORSÍÐA
STJÓRNSÝSLA
ÞJÓNUSTA
UMHVERFI OG SKIPULAG
MANNLÍF OG MENNING
EYÐUBLÖÐ
Ýmsar myndir
Skip Navigation Links
Prenta

 

REGLUR

um liðveislu fyrir fatlaða í Sveitarfélginu Álftanesi

 

1.gr.

Stjórn og yfirumsjón

Félagsmálanefnd Álftaness annast liðveislu fyrir fatlaða sbr. 24. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðra. Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með liðveislu og ber ábyrgð ráðningu liðveitenda.  Félagsmálanefnd heimilar félagsmálastjóra að samþykkja liðveislu skv. reglum þessum.

 

2. gr.

Réttur til liðveislu

Heimilt er að veita þeim liðveislu sem eru andlega eða líkamlega fatlaðir, sbr. 2. gr. um málefni fatlaðra, sem búa utan stofnana og hafa náð 6 ára aldri.

Þjónustan er ætluð einstaklingum sem hafa lögheimili og búsetu á Álftanesi.

 

3. gr.

Markmið með liðveislu

Markmið liðveislu er að veita persónulegan og félagslegan stuðning, veita fötluðum aðstoð til að njóta menningar og félagslífs og rjúfa félagslega einangrun.

 

4. gr.

Umsókn um liðveislu

Umsækjendur um liðveislu skulu fylla út skriflega umsókn á þar til gerðu eyðublaði, þar sem fram kemur ósk um tímafjölda og fyrirkomulag liðveislunnar. Staðfesting á fötlun umsækjanda skal fylgja frumumsókn.

 

5. gr.

Tímabil samþykkar og fjöldi tíma

Samþykkt liðveisla skal vera tímabundin hvort sem um hópliðveislu eða einstaklingsliðveislu er að ræða. Fyrsta samþykkt skal að jafnaði vera til tveggja mánaða. Eftir þann tíma skal umsókn metin og ákvörðun tekin um hvort ástæða þykir til að framlengja samningnum. Hámarkstímafjöldi í liðveislu eru 16 tímar á mánuði. 

 

6. gr.

Undanþágur

Hægt er að sækja um undanþágu fyrir fleiri úthlutuðum liðveislutímum í sérstökum tilvikum.  Heimilt að veita þeim sem búa á sambýlum tímabundna þjónustu í undantekningartilvikum.

Skal félagsmálanefnd Álftaness fjalla sérstaklega  um allar umsóknir um undanþágur og meta í hverju tilviki fyrir sig.

 

7. gr.

Samningur um liðveislu

Gera skal skriflegan samning við þjónustuþega og liðveitanda. Þar skal koma fram mánaðarleg vinnuskylda, skipulag starfsins, verksvið og vinnureglur.

 

8. gr.

Þagnarskylda

Liðveitanda ber að gæta þagmælsku og virða trúnað í samskiptum sínum við þjónustuþega. Liðveitanda er skylt að undirrita yfirlýsingu þess efnis. Helst þagnarskyldan þótt viðkomandi láti af störfum.

 

9. gr.

Vinnuskýrsla og útlagður kostnaður

Liðveitandi skal skila vinnu- og akstursskýrslum fyrir 20. hvers mánaðar á þar til gerðum eyðublöðum. Einnig skal liðveitandi skila inn yfirliti og reikningum vegna útlagðs kostnaðar sem fylgja liðveislu. Kostnaðurinn skal ekki fara yfir kr. 5000,- á mánuði. Kostnaður vegna aksturs og ferða fer eftir samkomulagi félagsmálastjóra og liðveitanda hverju sinni.

 

10. gr.

Handleiðsla starfsfólks

Til að tryggja sem besta þjónustu skal bjóða liðveitendum upp á reglulega handleiðslu á störf sín.

 

11. gr.

Rökstuðningur synjunar

Sé umsókn synjað, skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem forsendur synjunar eru rökstuddar.

 

12. gr.

Gildistími

Reglur þessar taka gildi við samþykkt í bæjarstjórn.

 

 

Samþykkt í félagsmálanefnd Álftaness 31. janúar 2007.

Samþykkt í bæjarstjórn Álftaness 20. febrúar 2007

 

Sigurður Magnússon, bæjarstjóri

Fyrirspurnir
Eyðublöð
Umræðan
Veftré
Fundargerðir
Samþykktir