Bjarnastaðir
225 Álftanes
Sími 550 2300 - fax 550 2309
Minnsta letur
Miðstærð leturs
Stærsta letur
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
16
17
18
19
25
26
28
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Atburðadagatal

 

 

 

  

 

 

FORSÍÐA
STJÓRNSÝSLA
ÞJÓNUSTA
UMHVERFI OG SKIPULAG
MANNLÍF OG MENNING
EYÐUBLÖÐ
Ýmsar myndir
Skip Navigation Links
Prenta

 

Reglur Sveitarfélagsins Álftaness um niðurgreiðslu

vegna daggæslu barna í heimahúsum

 

 

Markmið með reglum þessum er að draga úr kostnaði foreldra/forsjáraðila vegna gæslu barna hjá dagforeldri.

Niðurgreiðsla er háð eftirfarandi skilyrðum:

  • Að foreldrar/forsjáraðilar og barn eigi lögheimili á Álftanesi.
  • Að dagforeldri, sem tekur að sér gæslu barns, hafi leyfi viðkomandi byggðarlags skv. reglugerð frá Félagsmálaráðuneytinu nr. 907/2005.
  • Að foreldri/forsjáraðili staðfesti vistun barns mánaðarlega á eyðublað sveitarfélagsins.
  • Að sótt hafi verið um leikskólapláss á leikskólum sveitarfélagsins og beðið sé eftir plássi þar.
  • Að fyrir liggi þjónustusamningur milli dagforeldris og sveitarfélagsins.

Önnur atriði:

  • Greitt fyrir börn að loknu fæðingarorlofi beggja foreldra þar til barn fær leikskólapláss á Álftanesi.
  • Niðurgreitt er 11 mánuði ársins.
  • Dagforeldi fær niðurgreiðslu greidda skv. upplýsingum á þjónustusamningi og á eyðublöðum sveitarfélagsins sem skila þarf inn mánaðarlega. Greitt er fyrirfram fyrir hvern mánuð í upphafi mánaðar. Vistunareyðublöð skulu hafa borist bæjarskrifstofu eigi síðar en 25. dag mánaðar.
  • Mánaðarlegar niðurgreiðslur eru miðaðar við daglegan dvalartíma barns hjá dagforeldri. Hámarksniðurgreiðsla með hverju barni er eftirfarandi:
    • Fyrir gifta foreldra og sambúðarfólk skal greitt að hámarki fyrir 8 klst. vistun, kr. 30.000,- eða sem svarar kr. 3.750,- hverja mánaðarklukkustund.
    • Fyrir einstæða foreldra, ef báðir foreldrar eru í fullu námi, annað eða báðir foreldrar öryrkjar eða systkini hjá dagforeldri skal greitt að hámarki fyrir 8 klst.vistun, kr. 35.000,- eða sem svarar kr. 4.375,- fyrir hverja mánaðarklukkustund.

Hámarksgreiðsla er skv. ofangreindu miðuð við 8 klst. vistun, ef vistunartíminn er skemmri er greitt hlutfallslega.
Sækja þarf um afslátt á þar til gerðum eyðublöðum. Staðfesting skal fylgja með vegna náms, örorku eða hjúskaparstöðu. Óskir um afslátt (annan en vegna örorku) skal endurnýja árlega, í júlí.

 

Reglur þessar taka gildi 1. ágúst 2009, eldri reglur falla niður frá sama tíma.

Fyrirspurnir
Eyðublöð
Umræðan
Veftré
Fundargerðir
Samþykktir