SAMÞYKKT
SAMTAKA SVEITARFÉLAGA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
1. gr.
Samtökin heita ,,Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu” skammstafað SSH. Varnarþing þeirra skal vera í því sveitarfélagi þar sem aðalskrifstofa SSH er á hverjum tíma.
2. gr.
Markmið samtakanna er:
-
að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum sveitarfélaganna
-
að efla samstarf sveitarfélaganna og stuðla að auknum samskiptum og samstarfi sveitarstjórnarmanna, sveitarstjórnarnefnda og starfsmanna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
3. gr.
Aðilar að SSH eru eftirtalin sveitarfélög:
Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes, Kópavogur, Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.
4. gr.
Aðalfundur SSH skal haldinn eigi síðar en 15. október ár hvert.
Fulltrúar á aðalfundinum með málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt skulu vera allir kjörnir sveitarstjórnarmenn þeirra sveitarfélaga sem eru aðilar að SSH á hverjum tíma en varamenn þeirra skulu á sama hátt vera varafulltrúar þeirra á aðalfundinum, einnig stjórnarmenn SSH eða varamenn þeirra. Taki kjörinn sveitarstjórnarmaður sæti í stjórn SSH skal hann sitja fundinn sem slíkur en varamaður hans taka sæti sem fulltrúi á fundinum.
Eftirtaldir liðir skulu vera á dagskrá aðalfundar:
-
Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
-
Endurskoðaðir reikningar fyrir næstliðið almanaksár.
-
Starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
-
Kosning stjórnar og endurskoðenda.
-
Önnur mál sem stjórn SSH eða einstök sveitarfélög óska eftir að tekin verði til umræðu á aðalfundi, enda séu slík mál lögð fram og kynnt fulltrúum með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.
5. gr.
Stjórn SSH skal skipuð framkvæmdastjórum þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að SSH hverju sinni. Hver sveitarstjórn tilnefnir varamann úr röðum kjörinna sveitarstjórnarmanna aðildarsveitarfélaga SSH.
Formaður skal kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn og skipta aðildarsveitarfélögin með sér formennskunni. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti.
Á aðalfundi skal skipað fulltrúaráð til árs í senn þar sem hver sveitarstjórn tilnefnir tvo fulltrúa frá hverju sveitarfélagi. Fundir fulltrúaráðs skulu haldnir tvisvar á ári, í mars og nóvember. Stjórn SSH boðar til þessara funda með minnst tveggja vikna fyrirvara og skal þá fylgja dagskrá þeirra.
Fundargerðir stjórnar og fulltrúaráðs skulu sendar aðildarsveitarfélögunum strax að fundi loknum.
Á aðalfundi skal einnig kjósa tvo skoðunarmenn ársreikninga og tvo til vara.
Aðeins kjörnir aðalmenn í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga SSH eru kjörgengir í fulltrúaráð. Það sama gildir um kjör skoðunarmanna ársreikninga.
6. gr.
Stjórn SSH skipar samstarfsráð til árs í senn. Samstarfsráðið skal skipað fulltrúum frá aðildarsveitarfélögunum, samtökum launafólks, ríkisstofnunum, félagasamtökum eða menntastofnunum. Um skipan samstarfsráðsins er vísað til samþykktar um það.
Stjórn SSH skipar svæðisskipulagsráð til árs í senn. Í ráðinu eiga sæti formenn allra skipulagsnefnda sveitarfélaga á svæðinu og einn fulltrúi frá minnihluta hverrar sveitarstjórnar, tilnefndur af sveitarstjórn. Kjörgengir til formanns svæðisskipulagsráðs eru eingöngu formenn skipulagsnefnda. Sveitarstjórnir tilnefna varamenn fulltrúa sinna í svæðisskipulagsráðið.
Stjórn SSH getur tilefnt starfsnefndir til að annast framkvæmd einstakra verkefna. Við kjör slíkra nefnda skal kveða á um hlutverk, starfstíma og verklok viðkomandi nefndar. Einstökum stjórnarmönnum er heimilt að sitja fundi slíkra nefnda.
7. gr.
Stjórn SSH ræður framkvæmdastjóra samtakanna. Framkvæmdastjóri ræður annað starfslið með samþykki stjórnar SSH. Um skyldur og réttindi starfsfólks SSH, þ.m.t. launakjör skal taka hliðsjón af gildandi reglum og launasamningum hjá Reykjavíkurborg hverju sinni.
8. gr.
Eigi síðar en í lok septembermánuðar ár hvert skal stjórnin senda aðildarsveitarfélögum SSH áætlun um starfsemi samtakanna fyrir næsta ár ásamt fjárhagsáætlun sem afgreiddar skulu á aðalfundi SSH og staðfestar í sveitarstjórnum allra aðildarsveitarfélaganna. Hafni sveitarstjórn að staðfesta samþykkta fjárhagsáætlun skal stjórn SSH boða til aukaaðalfundar innan fjögurra vikna.
Kostnaður við rekstur samtakanna greiðist í hlutfalli við íbúatölu aðildarsveitarfélaganna sbr. staðfesta fjárhagsáætlun og með framlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Allur kostnaður utan samþykktrar fjárhagsáætlunar sem fellur á SSH skal samþykktur af stjórn samtakanna og greiðist hann í hlutfalli við íbúatölu aðildarsveitarfélaganna. Heimilt er að færa rekstrarafgang allt að 5% af heildarútgjöldum sbr. fjárhagsáætlun, milli ára. Fari útgjöld umfram heimild í fjárhagsáætlun dregst samsvarandi upphæð frá rekstrarframlögum aðildarsveitarfélaga næsta rekstrarár.
Sveitarstjórnir skuldbinda sig til að greiða mánaðarlega fyrirfram 1/12 hluta af áætluðum kostnaði viðkomandi sveitarsjóðs við rekstur SSH.
Sérstakt reikningshald skal fært fyrir SSH og skal það endurskoðað af kjörnum endurskoðendum samtakanna, síðan lagt fyrir stjórnina og að lokum fyrir aðalfund til samþykktar.
9. gr.
Ef stjórn SSH samþykkir að taka upp samstarf um einstaka málaflokka sem falla utan vettvangs samstarfsráðs eða svæðisskipulagsráðs og kostnaður við verkefnið nemur sem svarar yfir 5% af heildarútgjöldum SSH á ársgrundvelli, skal bera það upp til samþykktar í sveitarstjórnum allra aðildarsveitarfélaganna.
10. gr.
Stjórn SSH getur aldrei bundið aðildarsveitarfélögin nokkrum fjárhagsskuldbindingum, sem eru utan staðfestrar fjárhagsáætlunar eða eru umfram ráðstöfunarheimildir stjórnar sbr. 9. grein, nema með formlegu samþykki allra aðildarsveitarfélaganna.
11. gr.
Tillögum stjórnar SSH um þau mál sem falla utan fjárhagsáætlunar, verksviðs samstarfsráðs eða svæðisskipulagsráðs og eru umfram ráðstöfunarheimildir stjórnar sbr. 9. grein, skal komið án tafar til sveitarstjórna til afgreiðslu eða umsagnar.
12. gr.
Samþykkt þessari verður aðeins breytt á aðalfundi SSH, enda hafi breytingartillögur verið kynntar með minnst mánaðarfyrirvara og þær hlotið samþykki með 2/3 hlutum atkvæða á aðalfundi.
Með samþykki samþykktar þessarar fellur úr gildi eldri samþykkt SSH.
Samþykkt á framhaldsaðalfundi 1. mars 2002.