Bjarnastaðir
225 Álftanes
Sími 550 2300 - fax 550 2309
Minnsta letur
Miðstærð leturs
Stærsta letur
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
16
17
18
19
25
26
28
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Atburðadagatal

 

 

 

  

 

 

FORSÍÐA
STJÓRNSÝSLA
ÞJÓNUSTA
UMHVERFI OG SKIPULAG
MANNLÍF OG MENNING
EYÐUBLÖÐ
Ýmsar myndir
Skip Navigation Links
Prenta

 

Starfsmannastefna Álftaness

 

Bæjarstjórn Álftaness samþykkti á fundi sínum þann 17. júní 2004 eftirfarandi starfsmannastefnu sem nær til allra þeirra sem ráðnir eru til starfa hjá bæjarfélaginu.

Um almenn réttindi og skyldur starfsfólks sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum laga, samþykktum sveitarstjórnar, kjarasamningum og ráðningarsamningum.

 

 

1. Markmið

Markmið  með starfsmannastefnu sveitarfélagins Álftaness er að tryggja íbúum bæjarfélagsins góða og skilvirka þjónustu með hæfu og áhugasömu starfsfólki á eftirsóttum og góðum vinnustöðum. Með skýrri starfsmannastefnu verði tryggt, að starfsemi bæjarfélagsins einkennist ávallt af fyrsta flokks fagþekkingu, verkkunnáttu og þjónustulundí samræmi við sýn bæjarstjórnar og þarfir bæjarbúa.

 

Skýr starfsmannastefna auðveldar einnig ákvarðanatöku hjá stjórnendum þar sem ákvarðanir miðast við samræmda stefnu en ekki persónulegar skoðanir viðkomandi. Ennfremur leiðir samræmd stefna til skilvirkari starfsemi þar sem aðilar þekkja betur hlutverk sín.

 

Til að ná þessum markmiðum bæjarfélagsins verður lögð áhersla á eftirtalin atriði:

  1. Stjórnsýsla Álftaness og starfsemi stofnana bæjarfélagsins sé skilvirk og hagkvæm, m.a. með því að valdi til ákvarðana og ábyrgð á þeim sé dreift svo að sjálfstæði og frumkvæði starfsfólks nýtist sem best.
  2. Gagnkvæmt traust, jafnræði og gott samstarf ríki meðal starfsfólks og milli starfsfólks og kjörinna fulltrúa bæjarstjórnar og íbúa bæjarfélagsins. Starfsfólk sé vel upplýst um stjórnkerfi bæjarfélagsins, verkefni sín og skyldur.
  3. Starfsfólki sé veitt öruggt starfsumhverfi og góð vinnuaðstaða. Kapp sé lagt á góðan aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum bæjarfélagsins.
  4. Öflug fræðsla og símenntun sé sameiginlegt hagsmunamál bæjarfélagsins og starfsfólks þess.    

 

 

2. Mótun og framkvæmd starfsmannastefnu

Lögð er áhersla á að við mótun og framkvæmd starfsmanna­stefnu sveitarfélagsins Álftaness sé hlutverkaskipting skýr.

 

  1. Bæjarstjórn – bæjarráð – bæjarstjóri
    Bæjarstjórnstaðfestir starfsmannastefnu að fenginni tillögu frá bæjarráði, sem hefur með höndum mótun stefnunnar. Starfsmannastefnan þarf ávallt að samrýmast kröfum samtímans. Við endurskoðun verða höfð samráð við forstöðumenn stofnana og fulltrúa starfsfólks.
    Sem æðsti yfirmaður alls starfsliðs  skal bæjarstjóri, í samráði við bæjarráð, ábyrgjast gagnvart bæjarstjórn að starfsmannastefnu bæjarfélagsins sé framfylgt. Sem umsjónarmaður með starfsmannaþjónustu hefur skrifstofustjóri, í umboði bæjarstjóra, umsjón og eftirlit með framkvæmd einstakra ákvæða starfsmannastefnunnar.
  2. Forstöðumenn stofnana
    Lögð er áhersla á valddreifingu þannig að stofnanir hafi sem mest sjálfstæði og séu í stakk búnar til þess að mæta kröfum um skilvirkni og hagkvæmni í rekstri. Forstöðumenn eru ábyrgir fyrir framkvæmd starfsmannastefnunnar, hver í sinni stofnun. Í því felst m.a. eftirfarandi:
    - að kynna starfsmannastefnuna fyrir öllu starfsfólki og sjá til þess að starfsmannastjórnun sé ávallt í samræmi við áætlanir um fram­kvæmd stefnunnar innan stofnunar.
    - að vera stöðugt vakandi fyrir þeim starfsskilyrðum sem starfsfólk býr við og gera áætlanir um úrbætur þar sem þeirra er þörf.
    - að hvetja starfsfólk til þess þróa faglega hæfni sína til starfa og auka frumkvæði þeirra og sjálfstæði í störfum.
    - að gæta þess að eðlilegum kröfum um jafnræði, jafnrétti, sanngirni, valddreifingu og þátttöku í ákvörðunum, sé mætt.
    Bæjarstjóri mun halda með reglulegu millibili forstöðumannafundi þar sem framkvæmd starfsmannastefnunnar verður til umræðu eftir því sem tilefni er til.

 

  1. Starfsmannaþjónusta
    Starfsmannaþjónusta er á skrifstofu bæjarfélagsins sem skrifstofustjóri stýrir. Starfsfólk skrifstofu veitir forstöðumönnum stofnana faglega aðstoð við framkvæmd starfsmanna­stefnu, m.a. með því að:
    - veita aðgengi að kjarasamningum og ráðgjöf um efni þeirra.
    - halda starfsmannaskrá þar sem fram koma ýmis atriði sem mismunandi eru milli einstakra launamanna og hópa starfsfólks.
    - koma að málum, eftir því sem þörf er á, varðandi ráðningar og starfslok starfsfólks.
    - veita upplýsingar um nýjungar og þróun í starfsmannamálum, til að mynda  vinnuvernd, öryggismál og starfsmannastjórnun.
    Starfsmannaþjónusta sér um samskipti bæjarfélagsins við aðila utan stjórnkerfis þess  varðandi framkvæmd og túlkun kjarasamninga, þ.m.t. stéttarfélög og starfskjaranefndir.
  1. Starfsfólk
    Allt starfsfólk sveitarfélagsins Álftaness er hvatt til að koma á framfæri athugasemdum um atriði sem það telur að betur megi fara við framkvæmd starfsmannastefnu bæjarfélagsins og eiga frumkvæði að því að starfsmannamál séu rædd á jákvæðan hátt.

 

 

3. Ábyrgð og skyldur

Það er stefna sveitarfélagsins Álftaness að umboð og ábyrgðarsvið kjörinna fulltrúa, forstöðumanna og almenns starfsfólks sé skýrt. Lögð er áhersla á góð samskipti, greiðar boðleiðir og traust upplýsingastreymi milli starfsfólks, kjörinna fulltrúa bæjarstjórnar og nefnda og bæjarbúa. Lög, reglugerðir, samþykktir bæjarstjórnar og annað regluverk sem varðar starfsfólk skulu vera öllu starfsfólki aðgengilegt.

Allt starfsfólk bæjarfélagsins, jafnt stjórnendur sem aðrir, bera sameiginlega ábyrgð á því að gæði séu ávallt höfð að leiðarljósi í öllum samskiptum við íbúa og aðra þá sem bæjar­félagið er í viðskiptum við.

Kröfur sem gerðar eru til sveitarfélaga eru háðar sífelldum breytingum. Þess vegna er mikilvægt að stofnanir og starfsfólk bæjarfélagsins takist á við breytingar með jákvæðu hugarfari.

Það er skylda starfsfólks sveitarfélagsins Álftaness að halda trúnað í samskiptum við bæjarbúa og aðra. Starfsfólk þarf að kunna skil á og tileinka sér ákvæði laga og reglna um þagnarskyldu og meðferð trúnaðar­upplýsinga.

 

  1. Stjórnendur
    Stjórnendur hjá sveitarfélaginu Álftanesi eru bæjarstjóri og forstöðumenn. Þeir bera ábyrgð á stjórn og skipulagi starfa sem undir þá heyra, Með starfsmannastefnu er lögð áhersla á að allir stjórnendur tileinki sér góða og árangursríka stjórnunarhætti, hafi góða yfirsýn yfir verksvið sitt og samhæfi störf undirmanna sinna svo að markmiðum vinnustaðarins verði náð með sem hagkvæmustum hætti.
    Með það að leiðarljósi skulu stjórnendur:
    - leitast við að skapa samkennd meðal starfsfólks síns og gera þeim grein fyrir markmiðum með starfseminni.
    - sjá til þess að samstarf við aðrar deildir og stofnanir bæjarfélagsins sé í eðlilegu horfi. 
    - leitast við að hafa samráð við starfsfólk um málefni vinnustaðarins, jafna ágreining og beita sér fyrir sem víðtækastri sátt um stefnu og starfshætti. Æskilegt er að starfsmannaviðtöl fari fram reglubundið þar sem yfirmaður ræðir við hvern starfsmann um vinnuframlag hans og        möguleika á þróun í starfi.
    - halda uppi góðri upplýsingamiðlun meðal starfsfólks svo að það geti leyst verkefni sín af hendi á árangursríkan hátt og bæjarfélagið geti náð fram markmiðum sínum í einstökum málaflokkum. Miðla upplýsingum með hvetjandi hætti til starfsfólks, en taka jafnframt tillit til trúnaðar sem nauðsynlegur getur verið. 

 

  1. Annað starfsfólk
    Með starfsmannastefnu er leitast við að auðvelda starfsfólki að takast á við starfsábyrgð og þær skyldur sem í starfinu felast. Áhersla er lögð á mikilvægi þess að starfsfólk viðhaldi faglegri þekkingu sinni og að það þrói hana í takt við kröfur samtímans.
    Starfsfólki ber að hlíta lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinna, sýna heiðarleika, trúmennsku og vandvirkni og gæta þagmælsku um atriði sem það verður áskynja í starfi. Starfsfólki ber að gæta þess að framkoma og athafnir þess samrýmist starfinu sem það gegnir.

 

 

4. Starfsumhverfi og starfsskilyrði

Með starfsmannastefnu er leitast við að starfsfólk sveitarfélagsins Álftaness sé ánægt með vinnustað sinn, bæði starfsumhverfi og starfsanda. Lögð er áhersla á að samhugur, gott samstarf og gagnkvæm virðing ríki milli einstakra starfsmanna og milli starfsmanna og kjörinna fulltrúa og bæjarbúa.

a)        Vinnustaðir

Sveitarfélagið Álftanes leggur áherslu á:

 

-          að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum starfsmanna sé með besta móti, enda eru gagnkvæmir hagsmunir að vellíðan og heilbrigði starfsfólks séu hafðir að leiðarljósi. Starfsfólki er skylt að fylgja kröfum sem gerðar eru um öryggi og gætni í starfi. Lögð er áhersla á mikilvægi heilsueflingar og heilbrigðra lifnaðarhátta.

-          að vinnustaðir sveitarfélagsins hafi til staðar búnað og aðstöðu til að draga úr umhverfisáhrifum af starfseminni.

-      að bæta vinnuaðstæður fyrir það starfsfólk sitt sem er ekki fullfært um að mæta þeim skilyrðum sem almennt eru sett á vinnustöðum.

-      að starfsfólk finni til öryggis vegna þess að það hefur innsýn í og áhrif á þróun vinnustaðar síns og eigin starfsskilyrði.

-      að starfsfólk bæjarfélagsins fylgi reglum á hverjum vinnustað um vinnutíma, árangur og hátterni svo og lögum og sérstökum reglum deilda og stofnana hreppsins eins og þær eru hverju sinni.

-      að skapa starfsfólki sínu aðstæður til að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er.

-      að gera starfsfólki kleift að minnka starfshlutfall tímabundið vegna fjölskylduábyrgðar, t.d. umönnunar barna og sjúkra á heimili

-      að starfsfólk eigi kost á hlutastörfum og sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem aðstæður leyfa.

-      að vinnustaðir bæjarfélagsins verði reyklausir og starfsfólk hafi ekki um hönd vímuefni af neinu tagi á vinnutíma. Starfsfólki, sem vilja vinna úr vandamálum sem tengjast misnotkun vímuefna, skulu veittar leiðbeiningar og aðstoð til þess.

b)        Starfslýsingar

Gerðar skulu starfslýsingar fyrir öll störf á vegum bæjarfélagsins. Í starfslýsingu skal m.a. koma fram ábyrgðarsvið og helstu verkefni viðkomandi starfsmanns. Sé ekki fyrir hendi starfslýsing skal sá sem hefur með höndum stjórn viðkomandi starfs, gera starfslýsinguna í samráði við starfs­mann, eða áður en ráðið er í starfið.

Starfslýsing tekur gildi þegar hún hefur verið staðfest af bæjarstjóra.

Starfslýsingar skulu endurskoðaðar reglulega eftir því sem þurfa þykir. Þá er farið yfir starfslýsingar í starfsmanna­viðtölum.

c)      Starfsmannafundir - starfsmannaviðtöl

Á vinnustöðum skulu haldnir starfsmannafundir a.m.k. tvisvar sinnum á ári. Forstöðumaður boðar til fundarins með góðum fyrirvara og gætir þess að allt starfsfólk eigi þess kost að sækja hann. Til umræðu á slíkum fundum getur komið hvert það málefni sem almennt varðar vinnustaðinn og þá sem þar starfa.

Allt starfsfólk skal eiga þess kost að ræða reglulega við þá sem stjórna störfum þess. Slík starfsmannaviðtöl skulu haldin með skipulögðum hætti og í samræmi við leiðbeiningar sem starfsmannaþjónusta lætur í té. Séu uppi vandamál varðandi frammistöðu starfsmanns skal fyrsta skrefið til lausnar þess jafnan vera starfsmannaviðtal að frumkvæði stjórnanda.

Til umræðu í starfsmannaviðtali getur verið hvert það atriði sem varðar umrætt starf, svo sem starfslýsing og vinnuframlag, og einnig möguleikar viðkomandi starfsmanns til þróunar í starfi. Leggja ber áherslu á gagnkvæmni þannig að starfsmannaviðtal sé ekki síður vettvangur fyrir starfsmann til þess að koma á framfæri sjónarmiðum sínum um skipulag starfsins og önnur atriði sem varða stjórn þess.

d)        Vinnuvernd og öryggismál

Þess skal ávallt gætt að starfsskilyrði starfsfólks séu góð. Með aðkomu heilbrigðiseftirlits og vinnueftirlits skal fylgst með því að aðbúnaður, hollustu­hættir og öryggi á vinnustöðum sé ávallt fullnægjandi.

Þess skal ávallt gætt að umhverfismál séu í góðu lagi og samræmist stefnu bæjarfélagsins í umhverfismálum. Það er afar mikilvægt að starfsfólk bæjarfélagsins hafi umhverfismál, í víðum skilningi, ætíð í huga í öllum störfum sínum.

e)        Tímaskráningar og fjarvistir

Stjórnendur setja reglur um tímaskráningar síns starfsfólks í samráði við starfsmannaþjónustu. Öllu starfsfólki er gert að halda saman fjölda þeirra tíma sem þeir eru í starfi, nema annað fyrirkomulag sé bundið í kjara- eða ráðningarsamningi. Tíma­skýrslur skulu lagðar fram samkvæmt reglum eða venju stofnunar en hver starfsmaður ber ábyrgð á að skýrsla sem hann lætur frá sér sé rétt.

Stjórnendur skulu skrá allar fjarvistir og skýringar á fjarvistum á vinnuskýrslur, og grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir óeðlilegar fjarvistir. Ef starfsmaður veikist og getur af þeim sökum eigi sótt vinnu, skal hann tilkynna það yfirmanni sínum og skila vottorði læknis þar um enda hafi læknir skoðað viðkomandi á meðan veikindum stendur.

 

5.        Ráðningar.  Launa- og kjaramál

Bæjarstjórn Álftaness skal, að fenginni tillögu bæjarráðs, ákveða um fjölda heimilaðra stöðugilda hverju sinni. 

Í hvert skipti sem starf losnar skal starfsmannaþjónusta leggja mat á þörf fyrir starfið í samráði við viðkomandi forstöðumann, þ.e. hvort ástæða sé til að breyta starfslýsingu, kröfum til umsækjanda, leggja starfið niður, sameina það öðru starfi o.fl.  Þá skal kannað hvort tilefni sé til tilfærslu starfsmanns bæjarfélagsins í starfið og tillaga um slíkt lögð fyrir bæjarráð en starfið auglýst ella.

a)    Umsóknir og ráðningar

Bæjarstjórn ræður í stöðu bæjarstjóra og forstöðumanna og veitir þeim lausn frá störfum, sbr. ákvæði sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp bæjarfélagsins.

Það er markmið sveitarfélagsins Álftaness að ráða ávallt sem hæfast starfsfólk til allra starfa. Starfsfólk skal almennt ráðið ótímabundinni ráðningu og er gagnkvæmur uppsagnarfrestur þrír mánuðir nema kjarasamninar kveði á um annað. Forstöðumönnum stofnana er heimilt í samráði við starfsmannaþjónustu að ráða fólk til tímabundinna starfa, enda sé fjárveiting fyrir hendi í  fjárhagsáætlun. Við ráðningar í störf skal það haft að leiðarljósi að viðkomandi uppfylli sem best þær kröfur sem gerðar eru til starfsins.

Við ráðningu skal gera skriflegan ráðningarsamning við starfsmann og skulu fylgja samningnum helstu gögn sem þörf er á að starfsmaðurinn þekki, eins og starfsmannastefna, fjölskyldustefna, skólastefna, jafnréttisáætlun og umhverfisstefna bæjarfélagsins.Ráðningarsamningur telst vera opinbert gagn í skilningi upplýsingalaga, en með allar upplýsingar um persónulegt vinnuframlag og launakjör skal farið sem trúnaðarmál.

Leiði brot starfsmanns í starfi til ráðningarslita skal þess gætt að farið sé að gildandi reglum varðandi starfslok viðkomandi.

b)        Starfsþróun

Það er stefna sveitarfélagsins Álftaness að starfsfólk og vinnustaðir geti þróast í sameiningu til hagsbóta fyrir bæjarfélagið. Unnið verði markvisst að þróun verkfærni og verkefna hvers starfsmanns ásamt hæfni vinnustaðar til að takast á við síbreytileg viðfangsefni.

Á vinnustöðum bæjarfélagsins skal leitast við að starfsfólk eigi möguleika á starfsþróun í samræmi við metnað og kunnáttu. Starfsfólk skal hvatt til að efla fagþekkingu sína í samræmi við síbreytilegar kröfur sem gerðar eru til vinnustaða bæjarfélagsins.

Tilfærslur milli starfa geta einnig komið að gagni í þeim tilgangi að skapa starfsfólki reynslu á nýju sviði eða undirbúa þá undir ábyrgðarmikil stjórnunarstörf. Einnig geta tilfærslur milli starfa verið nauðsynlegar vegna breyttra áherslna í starfsemi deilda og stofnana, hagræðingar í rekstri eða breytinga á stjórnkerfi.

Óski starfsmaður eftir tilfærslu skal hann leita til viðkomandi yfirmanns. Reynt skal að verða við slíkum óskum ef mögulegt er, einkum hjá þeim sem hafa starfað lengi hjá bæjarfélaginu.

c)       Launamál

Bæjarráð hefur, sem launanefnd bæjarfélagsins, yfirumsjón með launamálum þess. Það er stefna bæjarfélagsins að fela Launanefnd sveitarfélaga umboð til gerðar kjarasamninga við sem flesta hópa starfsfólks. Sveitarfélagið Álftanes leggur áherslu á að umsamin launakjör laði að hæft starfsfólk og haldi því í starfi.

Bæjarráð ákvarðar stjórnendum heildarlaun, þ.m.t. fasta yfirvinnugreiðslu á mánuði, enda sé heimild til slíks í kjarasamningi viðkomandi yfirmanns og starfið sé þess eðlis að mati bæjarráðs að því fylgi þörf á reglulega unninni yfirvinnu sem yfirmaður hefur ekki tök á að hafa náið eftirlit með. Yfirmanni sé þá ekki greidd önnur yfirvinna.  Skal að jafnaði miðað við að heildaryfirvinnustundafjöldi ársins samsvari mati bæjarráðs og bæjarstjóra á raunverulega unninni yfirvinnu starfsmannsins á sama tímabili.

Stjórnendur skulu staðfesta akstursreikninga, dagpeningagreiðslur og aðra reikninga sem undirmenn leggja fram.

Um töku orlofs fer eftir ákvæðum viðkomandi kjarasamninga hverju sinni.  Beiðni starfmanns um orlof umfram réttindi skv. kjarasamningi til skemmri tíma (innan orlofsársins) skal afgreidd af viðkomandi forstöðumanni í samráði við starfsmannaþjónustu á þann hátt að hvorki fjárhagslegt né stjórnunarlegt óhagræði skapist af.  Beiðni um orlof í lengri tíma skal forstöðumaður leggja fyrir bæjarstjóra til afgreiðslu.

d)       Jafnréttismál

Í gildi er jafnréttisáætlun sveitarfélagsins Álftaness sem byggir á lögum nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna. Jafnréttisáætlunin nær til alls stjórnkerfis og starfsfólks bæjarfélagsins og þjónustu sem stofnanir þess veita bæjarbúum.

Stjórnendur eru ábyrgir fyrir því að ákvæðum jafnréttisáætlunarinnar sé framfylgt varðandi starfsmannamál bæjarfélagsins og að starfsfólki sé ekki mismunað með neinum hætti, s.s. eftir aldri, kynferði, uppruna, stjórnmála- eða trúarskoðunum.

e)        Starfsferill - starfslok

Sveitarfélagið Álftanes vill skapa starfsfólki sínu möguleika á samfelldum starfsferli þannig að eftir föngum verði tekið tillit til breytinga á aldri og persónulegum högum, aukinnar reynslu og menntunar, skertrar starfsgetu og fleiri þátta sem geta leitt til breyttra þarfa einstaklinga.

Stefnt skal að því að starfsfmenn láti af störfum eigi síðar en í lok þess mánaðar er þeir verða sjötugir. Þegar sérstaklega stendur á getur bæjarráð þó ákveðið að víkja almennt frá þessu ákvæði og framlengt ráðningarsamninga.

 

6.         Samskipti, starfsagi, siðareglur o.fl.

a)       Samskipti

Allt starfsfólk verður að leggja sitt af mörkum til þess að samskipti á vinnustað séu þægileg. Jákvætt viðmót og ánægja með vinnustaðinn eru hornsteinar starfs­manna­stefnunnar og atriði sem megináhersla verður lögð á að skapa og vernda.

Kjörnir fulltrúar eru einnig í starfi fyrir bæjarfélagið og því gildir hið sama um samskipti þeirra og ráðinna starfsmanna. Mikilvægt er að gagnkvæm virðing og umburðarlyndi einkenni samskipti þessara hópa.

Atferli starfsfólks sem felur í sér ógnun, ögrun eða truflun verður ekki umborið.

b)    Starfsagi

Allt starfsfólk skal sinna störfum sínum af heiðarleika, trúmennsku og vandvirkni. Starfsfólki ber að hlíta lögmætum og eðlilegum fyrirmælum stjórnenda. Starfsfólk skal sjá til þess að verkefni sem því eru falin séu unnin áfram ef upp koma forföll eða aðrar aðstæður sem raska störfum.

Starfsfólki ber að gæta þess að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu sem það gegnir.

Á þeim sviðum sem bæjarfélagið veitir þjónustu má starfsfólk þess ekkitaka við starfi hjá atvinnufyrirtæki eða ganga í stjórn þess, nema með leyfi bæjarráðs Leggja skal inn skriflegt erindi þar um og skal því svarað innan 4 vikna.  Þá skal starfsfólk ekki keppa að viðskiptalegum ávinningi sem fenginn er á kostnað bæjarfélagsins eða í andstöðu við hagsmuni þess og markmið. Starfsfólk skal ekki þiggja greiðslur eða annað endurgjald frá viðskipta­vinum bæjarfélagsins, sem túlka má sem þóknun fyrir greiða.

Sýni starfsfólk í starfi sínu óstundvísi eða vanrækslu, óvandvirkni, óhlýðni við löglegt boð eða bann yfirmanns síns, sé undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í starfi, brjóti trúnað eða þagmælsku, eða sé framkoma þess og athafnir að öðru leyti ósæmileg eða ósamrýmanleg starfinu, mun verða farið með málið sem alvarlegt brot.

Starfsfólki má veita lausn frá starfi um stundarsakir fyrir meintar misfellur í starfi í samræmi við ákvæði laga.

c)    Áfengis- eða vímuefnavandi

Notkun áfengis og annarra vímugjafa eða ávanabindandi efna má aldrei bitna á vinnuframlagi starfsfólks. Vilji starfsfólk vinna bug á misnotkun skal það njóta þeirrar aðstoðar sem tiltæk er í því skyni. Reynist meðferð á stofnun vera nauðsynleg til þess að bregðast við vandanum, á starfsfólk rétt á sérstöku launalausu leyfi vegna fyrstu dvalar sinnar á meðferðarstofnun.

Verði áfram til staðar vandi á þessu sviði hjá viðkomandi starfsmanni í þeim mæli að það komi niður á vinnu hans fyrir sveitarfélagið, skal honum í annað sinn gefinn kostur á launalausu leyfi vegna dvalar á meðferðarstofnun. Beri slíkt ekki árangur skal hann leystur frá störfum.

Reykingar eru ekki leyfðar á vinnustöðum bæjarfélagsins.

d)    Starf og fjölskyldulíf

Starfsfólk á réttmæta kröfu til þess að geta samræmt starfs- og fjölskyldu­ábyrgð. Við skipulag vinnunnar eiga stjórnendur sveitarfélagsins að líta til þess að persónulegar aðstæður eru mismunandi. Í ljósi þess og eftir því sem aðstæður leyfa, skal gefinn kostur á hlutastörfum og sveigjanlegum vinnutíma. Þá skal starfsfólki, bæði konum og körlum, eftir því sem kostur er gert kleift að minnka við sig vinnu tímabundið vegna umönnunar barna og sjúkra og annarra slíkra aðstæðna.

e)      Siðareglur

Starfsfólk sveitarfélagsins Álftaness skal ávallt hafa að leiðarljósi að það starfar fyrst og fremst í þágu íbúa bæjarfélagsins, sem leggur því þá skyldu á herðar að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum, hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa. Starfsfólk skal ávallt gæta hagsmuna bæjarfélagsins og persónulegs hlutleysis við störf sín.

Um mörg störf á vegum bæjarfélagins gilda skráðar og óskráðar siðareglur og skal starfsfólk fara eftir þeim í samræmi við venjur sem tíðkast í starfsstétt viðkomandi.

Telji starfsmaður að uppi sé árekstur milli reglna sem um starf hans gilda og þeirra fyrirmæla sem hann hefur fengið um starf sitt, skal hann umsvifalaust tilkynna stjórnanda um það. Leiði slík tilkynning ekki til viðbragða skal hann koma málinu á framfæri við bæjarstjóra.

 

7.         Fræðslu- og menntunarmál

Með öflugri símenntun stefnir sveitarfélagið Álftanes að því að auka mannauð og menntunarstig samfélagsins alls. Ákvæðum um fræðslu- og menntunarmál í starfsmannastefnunni er sérstaklega ætlað að efla frumkvæði einstakra starfsmanna á því sviði og styrkja sjálfstæði einstakra deilda og stofnana þegar kemur að vali á tilteknum símenntunarkostum. Ákvarðanir um símenntun, aðrar en þær sem eru samningsbundnar við stéttarfélög, eru teknar sam­eiginlega af viðkomandi forstöðumanni og starfsmannaþjónustu bæjarfélagsins, enda séu heimildir um slíkt í fjárhagsáætlun.

a)          Símenntun

Með símenntun er hér átt við alla fræðslu, þjálfun, endurmenntun og endurþjálfun starfsfólks bæjarfélagsins.

Það er sameiginlegt hagsmunamál bæjarfélagsins og þeirra sem hjá því starfa, að svo vel sé staðið að þessum þáttum sem kostur er. Því skal allt starfsfólk eiga kost á símenntun til þess að bæta við þekkingu sína og efla hæfni sína til starfa.

Sveitarfélagið Álftanes mun standa að því að bjóða starfsfólki sínu símenntun innan stofnunar og styðja að starfsfólk geti nýtt sér þá fræðslukosti sem annars staðar eru í boði. Það er í þágu hvers starfsmanns að hann haldi vöku sinni gagnvart möguleikum til símenntunar, en það er jafnframt á ábyrgð yfirmanns hans að viðhalda og bæta fagþekkingu sem nauðsynleg er starfsins vegna. 

Einstakar stofnanir skulu setja sér endurmenntunarstefnu sem samrýmist kröfum á hverjum stað og uppfyllir markmið starfsmannastefnu bæjarfélagsins.

b)    Nýtt starfsfólk

Starfsfólk sem kemur nýtt til starfa hjá bæjarfélaginu eiga að hljóta fræðslu um uppbyggingu þess og helstu þætti í rekstri. Þá á hver starfsmaður sem tekur við nýju starfi rétt á þeirri starfsfræðslu sem eðlileg er starfsins vegna. Í einstökum tilvikum getur verið um að ræða að starfmaður njóti tilsagnar leiðbeinanda, en miða skal við að starfsfræðsla sé að öllu jöfnu almenn og taki á helstu þáttum vinnunnar. Upplýsingar um vinnuvernd, öryggisatriði og fleira skulu aðgengilegar starfsfólki frá fyrsta degi.

 

8.         Upplýsingamiðlun

Örugg upplýsingamiðlun er forsenda fyrir því að traust ríki um framkvæmd starfs­manna­stefnunnar.

a)    Boðleiðir

Um boðleiðir milli starfsfólks gilda oft tilteknar venjur, einkum á vinnustöðum. Einnig eru til reglur um slík atriði, til dæmis ákvæði erindisbréfa nefnda bæjarfélagsins um verkaskiptingu milli kjörinna fulltrúa í nefndum og ráðum og starfsfólks.

b)        Upplýsingastreymi

Allar upplýsingar sem varða bæjarfélagið og starfsemi þess skulu vera aðgengilegar bæði starfsfólki og almenningi, svo sem stefnumótun í einstökum málaflokkun ásamt lögum og reglugerðum, samþykktir, skipurit og verklagsreglur, starfslýsingar og erindisbréf. Starfsmannaþjónusta skal fylgjast með því að þessi gögn séu uppfærð um leið og tilefni er til. 

Bæjarfélagið stefnir að því að nota vef sinn eins og kostur er til að miðla upplýsingum um starfsmannamál og aðra þætti í starfsemi sinni.

 

9.    Mat á árangri og frammistöðu

Starfsfólk sveitarfélagsins Álftaness þarf að vera vakandi fyrir hröðum breytingum í nútímaþjóðfélagi. Sveitarfélagið leggur þess vegna mikla áherslu á gildi þess að allt starfsfólk tileinki sér vinnubrögð sem byggjast á sífelldu mati á árangri og frammistöðu.

Mikilvægt er að forstöðumenn stofnana hafi forgöngu um að framfylgja símati.

 

 

 

Þannig samþykkt á fundi bæjarstjórnar Álftaness 17. júní 2004.
 

 

Fyrirspurnir
Eyðublöð
Umræðan
Veftré
Fundargerðir
Samþykktir