Bæjarstjórnarfundir
Íbúafundir
Gjaldskrár
Götukort
Laus störf
Sorphirða
Eftir að spurðist út að flatskjá Félags eldri borgara Álftanesi sem var í Litlakoti hafði verið stolið, gerðust sá mjög óvænti og frábæri atburður að forsvarsmenn Byggingafyrirtækisins Reisir ehf í Mosfellsbæ höfðu samband við félagið og tilkynntu að þeir ætluðu, í samvinnu við Sjónvarpsmiðstöðina, að gefa...
Vegna viðgerðarvinnu verður öldulaug og vaðlaug Álftaneslaugar lokaðar frá og með 26. ágúst og næstu 2-3 vikur. Öll önnur þjónusta verður eftir sem áður í fyrir hendi. Það verður því enn opið t.d. í rennibraut, sundlaug, innilaug, gufuböð, heita potta, líkamsrækt og íþróttasal.
Fjörudagurinn á Álftanesi 2010 verður haldinn n.k. sunnudag 29. ágúst.
Að venju verður safnast saman í sandfjörunni við Bakka
Dagskráin hefst klukkan 13, en þá mæta á svæðið sjávarlíffræðingar sem munu ganga með gestum út í Hrakhólma til að heimsækja og skoða...
Þegar gönguhópur eldri borgara kom að Litlakoti á þriðjudagsmorgun, var útihurðin ólæst og féll bara að stöfum og 42“ flatskjár af gerðinni LG horfinn ásamt köplum og fjarstýringu. Veggfestingin skilin eftir og ekki að sjá að fleira hefði verið fjarlægt.
Hinn 23. júlí síðast liðinn birti Ríkisendurskoðun niðurstöður rannsókna sinna í samræmi við samning bæjarstjórnar og Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga frá 17. desember 2009 og voru þær jafnframt lagðar fram á 126. fundi bæjarráðs Álftaness. Um er að ræða tvær rannsóknir, annars vegar "Athugun á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftaness" og hins vegar "Athugun á framlögum Jöfnunarsjóðs til reksturs grunnskóla á Álftanesi". Skýrslur Ríkisendurskoðunar má finna á www.rikisend.is og eru Álftnesingar hvattir til þess að kynna sér efni skýrslnanna enda varðar efni þeirra hag íbúa á Álftanesi. Eftirfarandi kemur fram
Bæjarstjórn Álftaness samþykkti á 86. fundi sínum, hinn 29. júní 2010, að fara þess á leit við bæjarstjórn Garðabæjar að hafnar verði formlegar sameiningarviðræður um mögulega sameiningu sveitarfélaganna. Samþykkt bæjarstjórnar er í samræmi við 90. gr. sveitarstjórnarlaga um frjálsa sameiningu sveitarfélaganna. Bæjarstjórn samþykkti aukinheldur á fundi sínum að skipa þrjá fulltrúa í sameiginlega samstarfsnefnd sem hefur það lögbundna hlutverk að annast athugun á kostum sameiningar sveitarfélaganna og stýra kosningu um sameiningu sveitarfélaganna.
Fréttatilkynningu vegna ákvörðunar bæjarstjórnar má finna hér.