Bæjarstjórn Álftaness hefur samþykkt að auglýsa, samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum, tillögu að deiliskipulagi Sviðholts á Álftanesi.
Gert er ráð fyrir að geymsluhjallur verði fjarlægður og heimilað verið að breyta notkun gripahúss í íbúða- og geymsluhús. Ennfremur gerir tillagan ráð fyrir því að afmarka rúma byggingarreiti fyrir núverandi hús í því augnamiði að þau geti stækkað og endurnýjast í framtíðinni. Aðkomuvegur verður að norðan í stað eldri aðkomu að vestan.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Álftaness, Bjarnastöðum, 225 Álftanesi og á heimasíðu sveitarfélagsins, www.alftanes.is, frá og með 10. júlí 2010 til 7. ágúst 2010.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 21. ágúst 2010. Athugasemdir skulu vera skriflegar og þeim skilað til skipulags- og byggingarfulltrúa Álftaness, Bjarnastöðum. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkja hana.
Álftanesi 6. júlí 2010,
Bjarni S. Einarsson,
bæjartæknifræðingur