Bjarnastaðir
225 Álftanes
Sími 550 2300 - fax 550 2309
Minnsta letur
Miðstærð leturs
Stærsta letur
Atburðadagatal
28
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
12
15
16
19
20
21
22
23
25
26
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Atburðadagatal

 

  

FORSÍÐA
STJÓRNSÝSLA
ÞJÓNUSTA
UMHVERFI OG SKIPULAG
MANNLÍF OG MENNING
EYÐUBLÖÐ
Ýmsar myndir
Skip Navigation LinksForsíða > Stjórnsýsla
Prenta

 

Stjórnsýsla

 

Stjórnkerfi sveitarfélagsins er tvískipt, annars vegar pólitískt vald sem hefur það meginhlutverk að marka stefnu og hafa eftirlit með að henni sé fylgt. Hins vegar er embættiskerfið þar sem embættismenn sinna framkvæmd stefnunnar í umboði bæjarstjórnar og rekstri sveitarfélagsins innan þess ramma sem bæjarstjórn ákveður.

 

Bæjarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykktum um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins. Bæjarstjórn kýs nefndir og ráð til að fara með einstaka málaflokka.

 

Bæjarráð ásamt bæjarstjóra fer með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins, fjármálastjórn og starfsmannastjórn sé slík stjórn ekki öðrum falin. Í sumarleyfi bæjarstjórnar fer bæjarráð með fullnaðarafgreiðslu mála. Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.

 

Bæjarstjórn fundar að jafnaði 1 sinni í mánuði og bæjarráð 1-2 sinnum í mánuði. Nefndir funda að jafnaði mánaðarlega.

 

Hlutverk nefnda sveitarfélagsins er skýrt í samþykktum bæjarstjórnar, lögum og reglum. Samþykktir nefnda í einstökum málum þarf að staðfesta í bæjarstjórn eða bæjarráði.

 

  • Atvinnumálanefnd er bæjarstjórn til ráðgjafar í atvinnumálum.
  • Félagsmálanefnd fer með verkefni jafnréttisnefndar, húsnæðisnefndar, öldrunarnefndar og barnaverndarnefndar. Nefndin hefur umsjón með daggæslu í heimahúsum, hefur umsjón með framkvæmd barnaverndarlaga og laga um málefni fatlaðra og aldraðra.
  • Íþrótta- og tómstundanefnd fer með íþrótta- og æskulýðsmál.
  • Menningar- og ferðamálanefnd er bæjarstjórn til ráðgjafar í menningar- og ferðamálum og fer auk þess með málefni bókasafns.
  • Skipulags- og byggingarnefnd fer með verkefni samkvæmt lögum og er bæjarstjórn til ráðgjafar í umferðarmálum og annast ferlimál fatlaðra.
  • Skólanefnd fer með málefni grunnskólans, skólabókasafns og leikskóla.
  • Tónlistarskólanefnd fer með málefni tónlistarskólans.
  • Umhverfisnefnd fer með lögbundin verkefni gróðurverndarnefndar og náttúruverndarnefndar.

 

Nánar er getið um nefndir, ráð, stjórnir, tilnefningar og kosningar í 61. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins.

 

Bæjarstjóri ásamt embættismönnum sveitarfélagsins sjá svo um afgreiðslu einstakra mála og framfylgja samþykktum og áætlunum bæjarstjórnar. Um störf embættismanna er fjallað í starfsmannastefnu, erindisbréfum og lögum um opinbera starfsmenn.

 

 

Bæjarskrifstofa Sveitarfélagsins Álftaness er á Bjarnastöðum.

 

Skrifstofan er opin virka daga kl. 8-16.

Sími 550 2300

Fax 550 2309

Netfang: bjarnastadir@alftanes.is

Fyrirspurnir
Eyðublöð
Umræðan
Veftré
Fundargerðir
Samþykktir