Bjarnastaðir
225 Álftanes
Sími 550 2300 - fax 550 2309
Minnsta letur
Miðstærð leturs
Stærsta letur
Atburðadagatal
28
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
12
15
16
19
20
21
22
23
25
26
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Atburðadagatal

 

  

FORSÍÐA
STJÓRNSÝSLA
ÞJÓNUSTA
UMHVERFI OG SKIPULAG
MANNLÍF OG MENNING
EYÐUBLÖÐ
Ýmsar myndir
Skip Navigation LinksForsíða > Stjórnsýsla > Fundargerðir
Prenta
Bæjarstjórn, fundur nr. 78

Dags. 21.1.2010

 

 

 

Bæjarstjórn

 

FUNDARGERÐ

(Vinnufundur bæjarstjórnar)

 

78. fundur bæjarstjórnar Álftaness haldinn í Haukshúsum,

fimmtudaginn 21. janúar 2010 og hófst kl. 17:00

 

Fundinn sátu:

Kristinn Guðlaugsson, forseti KG (D), Sigríður Rósa Magnúsdóttir, varaforseti SRM (D), Guðmundur G. Gunnarsson GGG (D), Margrét Jónsdóttir MJ (Ó), Sigurður Magnússon SM (Á), Kristín Fjóla Bergþórsdóttir KFB (Á), Kristján Sveinbjörnsson KS (Á).

 

Gestir á fundinum:

Guðmundur Sverrisson fjármálastjóri, Oddur Jónsson sérfræðingur hjá KPMG og Svanbjörn Thoroddsen sérfræðingur hjá KPMG.

 

Bæjarstjórn samþykkir að mál 1 – 3 verði rædd saman og að umræðan verði lokuð m.v.t. 19. gr. samþykktar sveitarfélagsins um stjórn og fundarsköp, sbr. 16. gr. sveitarstjórnarlaga.

Afgreiðsla: Samþykkt með 5 atkv. gegn 2 atkv. fulltrúa Á-lista, SM og KFB.

 

Bókun fulltrúa Á-lista, SM og KFB:

„Að loka fundi, eða einstöku dagskrármáli, samanber 16 gr. Sveitastjórnalaga og 19. sr. samþykkta Álftaness.

 

Í bókinni Sveitastjórnarlög nr. 45/1998, sem Samband íslenskra sveitarfélaga  gaf út árið 1998 með skýringum og athugasemdum Sesselju Árnadóttur, er undirstrikað að almenna reglan sé að skylt sé að halda sveitastjórnafundi fyrir opnum dyrum, hér sé um skyldu, en ekki val að ræða.  Ákveði sveitastjórn að fjalla um mál á lokuðum  fundi, geti það átt við um viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál.

Í nýrri útgáfu bókarinnar frá 2007 með frekari athugasemdum og úrskurðum er fyrri túlkun ítrekuð og til skýringar tekin dæmi úr úrskurðum og álitum sveitastjórnaráðuneytis vegna kæra um lokun funda. Nefnd eru sex dæmi. Fimm málanna tengjast viðkvæmum persónulegum málum, en eitt viðskiptamáli þ.e.a.s. undirbúningi að stofnun hlutafélags. Í bók Gunnars Eydal Sveitastjórnaréttur, sem Samband íslenskra sveitarfélaga gaf út 2006, skýrir hann 16. gr. laganna með hliðstæðum hætti og Sesselja Árnadóttir. Þannig segir hann t.d. „ Í auglýsingu Félagsmálaráðuneytisins eru tekin dæmi um þau undantekningatilvik sem leitt geta til lokunar funda, s.s. viðkvæm einkamál eða viðskiptamál“.

Í 19 gr. samþykkta sveitarfélagsins  er tekið upp orðalag sveitastjórnarlaga um að loka megi á viðkvæm persónuleg mál og viðskiptamál sem varða hagsmuni sveitarfélagsins. Í samþykktum sveitarfélagsins er kveðið á um að mál sem rædd séu á lokuðum fundi séu bundin þagnarskyldu.

Með vísan til ofanritaðra  tilvitnana í lög og samþykktir, teljum við bæjarfulltrúar Á-lista að ranglega hafi verið ákveðið að loka þessum fundi og þar með að binda bæjarfulltrúa þagnarskyldu. Málefni fundarins eru undirbúningur  fjárhagsáætlunar, sem hefur að markmiði stórfelldan niðurskurð á þjónustu við íbúana og frestun eða stöðvun framkvæmda sem varða uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins og mál er varða sjálfsákvörðunarrétt þess. 

Við teljum okkur ekki bundin þagnarskyldu vegna umræðna á fundinum, enda ríkari almannahagsmunir að greina frá umræðu fundarins en að þegja yfir henni. “

                                                 

Bókun fulltrúa D-lista og MJ:

„Þar sem því er lýst yfir í bókun SM og KFB að trúnaður ríki ekki um kynningu og umfjöllun á fundinum, svo sem samþykkt var sbr. tillögu fyrr á fundinum, þá lýsum við vanþóknun á afstöðu þessari og lýsum fullri ábyrgð á þá bæjarfulltrúa sem standa að umræddri bókun. En áréttum að trúnaður haldi.“

 

Bókun bæjarstjóra:

„Sé tekin ákvörðun um að einstakt dagskrármál, á fundi bæjarstjórnar, sé rætt fyrir luktum dyrum svo sem heimilt er m.v.t. 3. mgr. 19. gr. samþykktar sveitarfélagsins sbr. og 16. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, er þá þegar óheimilt að skýra frá því sem fram kemur við umræður á slíkum lokuðum fundi bæjarstjórnar. Í málinu eru ríkir einstaklings- og viðskiptahagsmunir og brýnt að bæjarstjórn geti rætt mál sem þessi efnislega fyrir luktum dyrum. Bæjarfulltrúar hafa rétt til að kæra ákvörðun bæjarstjórnar til Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga, finnist þeim ranglega staðið að ákvörðun. Trúnaðarskylda heldur þrátt fyrir að kæra sé lögð fram.“ 

 

 

1.     0912041 - Bréf frá Samgönguráðuneyti, dags 17.12.2009, ásamt drögum að samkomulagi við EFS.
Til máls tóku: PM, KG, KS, SM, KFB, MJ, GGG og SRM.

 

Lokað mál.

 

  1. 1001054 - Fjárhagsáætlun 2010

 

Lokað mál.

 

  1. 1001055 - Þriggja ára áætlun 2011-2013

 

Lokað mál.


Fundi slitið kl. 19:35

 



Til baka
Fyrirspurnir
Eyðublöð
Umræðan
Veftré
Fundargerðir
Samþykktir