FORSÍÐA
STJÓRNSÝSLA
ÞJÓNUSTA
UMHVERFI OG SKIPULAG
MANNLÍF OG MENNING
EYÐUBLÖÐ
Ýmsar myndir
Skip Navigation LinksForsíða > Þjónusta > Eldri borgarar
Prenta

Þjónusta fyrir eldri borgara

 

Málefni eldri borgara eins og þau snúa að sveitarfélaginu falla undir velferðar- og skólasvið.

Starfsfólk velferðar- og skólasviðs er til húsa á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins á Bjarnastöðum.Síminn á bæjarskrifstofunum er 550-2300, netfang er bjarnastadir@alftanes.is.

 

Starfsfólk Velferðar- og skólasviðs:

Skarphéðinn Jónssonforstöðumaður(skarphedinn@alftanes.is).

Starfssvið: Einkum málefni leik-, grunn- og tónlistarskóla auk Frístundar. Einnig félagsþjónustumál s.s. umsjón með húsaleigubótum, dagforeldrum o.m.fl.

Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagsráðgjafi(gudrun@alftanes.is).

Starfssvið:Félagsþjónusta, barnavernd, málefni aldraðra og fatlaðra o.m.fl.

 

Húsnæðismál

Húsaleigubætur

Sérstakar húsaleigubætur

Fasteignagjöld

Félagsleg heimaþjónusta

Félagsleg ráðgjöf

Heimsendur matur

Fjárhagsaðstoð

Afsláttur af mat 

Álftaneslaug

Íþróttasalur 

Félags- og tómstundastarf aldraðra

Febá (Félag eldri borgara á Álftanesi)

Akstur vegna heilbrigðisþjónustu fyrir eldri borgara

Akstur vegna félagsstarfs aldraðra

Vistunarmat

Garðsláttur og hirðing

Þjónustumiðstöð eldri borgara

Dagvist aldraðra 

Heilsugæsla

Sjúkraþjálfun

Heimahjúkrun

Þjónustuhópur aldraðra

 

 

 

Húsnæðismál
Starfsfólk velferðarsviðs veitir fólki ráðgjöf og alhliða upplýsingar um húsnæðismál og húsaleigusamninga. Fólk getur haft samband við bæjarskrifstofur í síma 550-2300 og fengið samband við Skarphéðin Jónsson forstöðumann eða Guðrúnu Hrefnu Sverrisdóttur félagsráðgjafa.

 

Húsaleigubætur
Þeir leigjendur sem eiga rétt á húsaleigubótum eru þeir sem leiga íbúðarhúsnæði til eigin búsetu og eiga þar lögheimili.Húsaleigubætur eru greiddar samkvæmt lögum nr. 100/1994.Skilyrði fyrir húsaleigubótum er að húsaleigusamningur sé þinglýstur og gildi í a.m.k. 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veita Skarphéðinn Jónsson forstöðumaður Velferðarsviðs og Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagsráðgjafi í síma 550-2300.

Upplýsingabæklingur um húsaleigubætur er á heimasíðu félagsmálráðuneytisins, sjá hér. Nánari upplýsingar og reglur um húsaleigubætur eru á heimasíðu ráðuneytisins, sjá hér.

Umsóknarblað um húsaleigubætur er hér.


Sérstakar húsaleigubætur
Þeir leigjendur sem eiga rétt á almennum húsaleigubótum geta sótt um sérstakar húsaleigubætur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.Sérstakar húsaleigubætur eru ætlar þeim sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður.Sérstakar húsaleigubætur eru greiddar sem viðbót við almennar húsaleigubætur.Hægt er að nálgast gildandi reglur sveitarfélagsins varðandi sérstakar húsaleigubætur á heimasíðu sveitarfélagsins, sjá hér.

Umsóknarblað um sérstakar húsaleigubætur er hér.

Upplýsingar veita Skarphéðinn Jónsson forstöðumaður og Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagsráðgjafi.

 

Fasteignagjöld

Aldraðir eiga rétt á afslætti af fasteignaskatti, fráveitugjaldi auk rotþróargjaldi skv. reglum sem settar eru af bæjarstjórn og eru í samræmi við tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og X. kafla vatnalaga nr. 15/1923.Afsláttur er veittur í samræmi við tekjur, sjá nánar hér.

Frekari upplýsingar veitir Guðmundur Sverrisson, fjármálastjóri í síma 550-2300.

  

 

Félagsleg heimaþjónusta
Félagsleg heimaþjónusta er veittöldruðum svo þeir geti búið eins lengi og hægt er við eðlilegt heimilislíf sbr. lög um málefni aldraðra nr. 125/1999.Enn fremur miðar heimaþjónusta að því að rjúfa félagslega einangrun hins aldraða.Heimaþjónusta er veitt samkvæmt mati í samvinnu við hinn aldraða, sjúkrahús, heilsugæslu eða aðstandendur.Mat á þjónustu er framkvæmt af Guðrúnu Hrefnu Sverrisdóttur félagsráðgjafa.

Í heimaþjónustu felast m.a. almenn heimilisþrif, félagsleg samvera og innlit. Reglur um heimaþjónustu má sjá hér.
Tveir starfsmenn starfa við félagslega heimaþjónustu.Umsóknir skal senda til velferðarsviðs, Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagsráðgjafi veitir frekari upplýsingar í síma 550-2300.
Umsóknareyðublað er hér.

 

Félagsleg ráðgjöf

Félagsleg ráðgjöf stendur eldri borgurum til boða, en um er að ræða ráðgjöf þar sem fólk fær upplýsingar um réttindi sín og hvert unnt er að snúa sér til að sækja þá þjónustu sem við á í hverju tilviki fyrir sig.Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagsráðgjafi veitir frekari upplýsingar í síma 550-2300.


Heimsendur matur
Öryrkjar og aldraðir eiga þess kost að fá heimsendan mat og þá eina máltíð á dag.Þessi þjónusta er veitt í samvinnu við Holtsbúð í Garðabæ.Ákveðið gjald er greitt fyrir hverja máltíð.

Umsóknir skulu berast til Guðrúnar Hrefnu Sverrisdóttur félagsráðgjafa eða Skarphéðins Jónssonar forstöðumanns, sem veita einnig frekar upplýsingar um þjónustuna í síma 550-2300.

Fjárhagsaðstoð

Fjárhagsaðstoð er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 en samkvæmt þeim er hverjum og einum skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.Fjárhagsaðstoð er veitt samkvæmt reglum sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð frá 17. júní 2004.

Umsækjendur þurfa að skila inn ákveðnum gögnum og mæta í viðtal hjá félagsráðgjafa. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagsráðgjafi í síma 550-2300.

 

Afsláttur af mat

IGS er rekur veitingasöluna í íþróttamiðstöðinni og sér um skólamat í Álftanesskóla býður eldri borgurum 15% afslátt af hádegis- og kvöldmat sem keyptur er í íþróttamiðstöðinni.


Álftaneslaug

Eldri borgarar fá ókeypis aðgang að Álftaneslaug.Ákveðnir tímar eru ætlaðir eldri borgurum sérstaklega í innilauginni.Nánari upplýsingar má fá í íþróttamiðstöðinni í síma 550-2350.

 

Íþróttasalur

Aldraðir geta nýtt salinn í íþróttahúsinu á ákveðnum tímum.Nánari upplýsingar má fá í íþróttamiðstöðinni í síma 550-2350.

 

Félags- og tómstundastarf aldraðra

Félags- og tómstundastarf eldri borgara fer einkum fram í Litlakoti sem staðsett er á skólasvæðinu á Álftanesi. Þar er opið hús eftir hádegi fjóra daga í viku og margvísleg starfsemi í gangi. Starfsmaður í hlutastarfi heldur utan um starfið og vinnur að dagskrá fyrir starfsemina. Starfsemin liggur niðri yfir sumarmánuðina.

Félags- og tómstundastarf aldraðra mun flytjast í nýja þjónustumiðstöð á miðsvæðinu innan fárra ára.Velferðar- og skólasvið gefur út fréttabréf tvisvar á ári þar sem fréttum og fróðleik er komið á framfæri.Þar er einnig yfirlit yfir helstu dagskrárliði í félagsstarfinu.

 

Febá (Félag eldri borgara á Álftanesi)

Félag eldri borgara á Álftanesi var stofnað árið 1997 og starfar skv. eigin lögum, sjáhér.

Íbúar sveitarfélagsins 60 ára og eldri geta sótt um inngöngu í félagið og er árgjaldi stillt í hóf. Formaður Febá er Guðrún Jóhannsdóttir (feba@simnet.is) sími 863-4225.Guðrún Jóhannsdóttir veitir frekari upplýsingar um félagið og starfsemi á þess vegum.Félagið hefur aðsetur í Litlakoti sem staðsett er á skólasvæðinu á Álftanesi.


Akstur vegna heilbrigðisþjónustu fyrir eldri borgara
Íbúar sveitarfélagsins sem náð hafa 67 ára aldri eiga rétt á akstursþjónustu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þjónustan er bundin við ferðir vegna læknisþjónustu, sjúkraþjálfunar eða annarrar heilbrigðiþjónustu sem viðkomandi þarf að sækja. Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagsráðgjafi veitir frekari upplýsingar um þessa þjónustu. Umsóknarblað er hér og reglur varðandi akstursþjónustuna eru hér.

 

Akstur vegna félagsstarfs aldraðra

Íbúar sveitarfélagsins sem náð hafa 67 ára aldri eiga rétt á akstursþjónustu í félagsstarf aldraðra að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Akstursþjónusta er til staðar til að sækja félagsstarf aldraðra innan marka sveitarfélagsins.Umsóknarblað er hér og reglur varðandi akstursþjónustuna eru hér.


Vistunarmat
Vistunarmat er skilyrði fyrir umsókn um dvöl á stofnunum fyrir aldraða. Vistunarmat er faglegt einstaklingsbundið mat á þörf hins aldraða fyrir vistun á stofnun. Metnar eru félagslegar aðstæður, heilsufar og andlegt ástand auk þess sem metin er færni í athöfnum daglegs lífs. Mat á vistunarþörf fyrir hjúkrunarrými er í höndum Vistunarmatsnefndar höfuðborgarsvæðisins. Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagsráðgjafi veitir frekari upplýsingar í síma 550-2300.Nánari upplýsingar um vistunarmat eru hér.


Garðsláttur og hirðing
Sveitarfélagið Álftanes veitir eldri borgurum og öryrkjum niðurgreiddan garðslátt og hirðingu tvisvar sinnum yfir sumarið ef óskað er. Umsækjendur skulu óska eftir þjónustu á bæjarskrifstofunni í síma 550-2300, þjónustumiðstöð (áhaldahús) sér um framkvæmdina.

 

Þjónustumiðstöð eldri borgara

Framkvæmdir eru hafnar við nýja þjónustumiðstöð eldri borgara sem rís á nýju miðbæjarsvæði á Álftanesi.Húsið samanstendur af þremur íbúðaálmum með um 30 íbúðum fyrir 50 ára og eldri.Samtengd álma inniheldur svo aðstöðu fyrir eldri borgara.Til að byrja með fá eldri borgarar um 170-200 fermetra sérrými til félags- og tómstundastarfs.Síðar mun stærstur hluti hússins falla undir starfsemi aldraðra svo og aðra þjónustu sem hentar eldri borgurum o.fl.Skarphéðinn Jónsson forstöðumaður og Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagsráðgjafi veita frekari upplýsingar í síma 550-2300. Nánari upplýsingar um fyrirhugaða þjónustumiðstöð má sjá hér.

 

Dagvist aldraðra 
Dagvist aldraðra er ekki til staðar á Álftanesi. Þessi þjónusta er í boði fyrir aldraða, ensækja þarf sérstaklega um hana.Dagvist aldraðra sem er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Í dagvist aldraðra skal veitt hjúkrunarþjónusta og vera aðstaða til þjálfunar og læknisþjónustu. Boðið skal upp á flutningsþjónustu að og frá heimili einstaklingsins, mat á heilsufari, þjálfun, tómstundaiðju, félagslegan stuðning, fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs”. (Lög um málefni aldraðra 125/1999).

Dagvist fyrir aldraða er einkum rekin á vegum Holtsbúðar í Garðabæ, Hrafnistu í Hafnarfirði auk Drafnarhúss í Hafnarfirði.

Nánari upplýsingar um þessi úrræði og umsóknir um þau veitir Guðrún Hrefna Sverrisdóttir, félagsráðgjafi í síma 550-2300.

 

Heilsugæsla

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins stendur öllum öldruðum til boða.Heilsugæslan í Hafnarfirði hefur einkum sinnt Álftnesingum, en einnig geta aldraðir snúið sér til þess heimilislæknis er þeir kjósa, hvort sem þeir eru sjálfsstætt starfandi eða hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Enn fremur stendur öldruðum til kvöld- og helgarþjónusta sú sem rekin er í Smáratorgi, Kópavogi.

 

Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfun er veitt hjá sjúkrastofnunum og sjálfsstætt starfandi sjúkraþjálfurum.Umsóknir um slíka þjónustu þurfa að berast heimilis- og/eða sérfræðilæknum.Frekari upplýsingar um þessa þjónustu veita læknar og sjúkraþjálfarar.

 

Heimahjúkrun

Slík þjónusta er veitt öldruðum skv. ákveðnu mati.Þjónustan er í höndum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Sólvangi Hafnarfirði.Nánari upplýsingar veita starfsmenn Heilsugæslunnar í síma 550-2400.

 

Þjónustuhópur aldraðra

Verkefni þjónustuhóps aldraðra er skilgreint í lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999, en megin hlutverk hans er að fylgjast með heilsufari og félagslegri velferð aldraðra á starfssvæðinu auk þess að samhæfa þjónustu.Ennfremur að gera tillögu til sveitastjórna um öldrunarþjónustu og leitast við að tryggja að aldraðir fái þá þjónustu sem þeir þarfnast og kynna öldruðum þá kosti sem í boði eru. Skipan þjónustuhóps má sjá hér

 

 

 

 

 



 

 

 

Fyrirspurnir
Eyðublöð
Umræðan
Veftré
Fundargerðir
Samþykktir