FORSÍÐA
STJÓRNSÝSLA
ÞJÓNUSTA
UMHVERFI OG SKIPULAG
MANNLÍF OG MENNING
EYÐUBLÖÐ
Ýmsar myndir
Skip Navigation LinksForsíða > Umhverfi og skipulag > Grenndarkynning
Prenta

 

Grenndarkynning

 

Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 m.s.br. er landið allt skipulagsskylt og skulu framkvæmdir vera í samræmi við staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag.  Þó er heimilt að víkja frá deiliskipulagsskyldu vegna stakra framkvæmda í þegar byggðum hverfum þar sem deiliskipulag er ekki fyrir hendi ef fyrirhuguð framkvæmd víkur ekki í verulegum atriðum frá notkun, nýtingarhlutfalli eða yfirbragði hverfisins. Í stað deiliskipulagsgerðar er þá hægt að beita svokallaðri grenndarkynningu. Slíkri kynningu er einnig beitt við óverulega breytingu á deiliskipulagi.

 

Grenndarkynning felst í því að skipulags- og byggingarnefnd kynnir nágrönnum fyrirhugaða framkvæmd sem getur varðað hagsmuni nágranna, t.d. skert útsýni, skapað óþægilega nálægð, varpað skugga á lóð nágranna, eða á annan hátt varðað hagsmuni nágranna, hefur nágranninn rétt að að koma sjónamiðum sínum um viðkomandi mál á framfæri.

 

Ákvörðun um grenndarkynningu er tekin á fundi skipulags- og byggingarnefndar.  Í framhaldi af honum er sent út bréf til þeirra aðila sem teljast til hagsmunaaðila. Í bréfinu er erindið tilgreint og teikningar sendar með bréfinu. Með vísan til 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 er hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna innan ákveðins frests sem skal vera a.m.k. 4 vikur. Að þeim fresti liðnum og þegar niðurstaða liggur fyrir skal skipulags- og byggingarfulltrúi taka málið til afgreiðslu. Þeim sem tjáðu sig um málið skal er tilkynnt um niðurstöðuna.

Fyrirspurnir
Eyðublöð
Umræðan
Veftré
Fundargerðir
Samþykktir