Frístundabíll
Frístundabíllinn í Garðabæ hefur það hlutverk að keyra börn frá frístundaheimilum grunnskóla í íþrótta- og tómstundastarf.
Búið er að opna fyrir skráningu hér.
Hvort sem barnið er í frístundaheimili eða ekki þarf að skrá það í frístundabílinn í gegnum Völu vetrarfrístund í upphafi annar. Velja þarf hvar barnið tekur bílinn, tíma dags og hvert það er að fara. Kostnaður fyrir haustönn 2023 er 8.800 kr og fyrir vorönn 11.950. Greiðsluseðill fyrir haustönn verður sendur út í október.
Hér má finna leiðbeiningar um skráningarferlið í Völu. ATH þegar búið er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í Völu vetrarfrístund þarf að velja sveitarfélag í fellistiku í horni vinstra megin. Þar er Garðabær valið (börn sem eru í frístundaheimili Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum velja Hjallastefnuna úr fellistikunni).
Í janúar þarf að staðfesta að skráningartímar fyrir vorönn séu réttir.
Frístundabíllinn ekur á starfstíma skólanna alla virka daga kl. 14.15 - 17:00, frá 28. ágúst til 19. desember á haustönn og frá 3. janúar til og með 6. júní á vorönn, með hléi í páskafríinu (23.mars-1. apríl) á vorönn. Frístundabíllinn ekur í vetrarfríi (19.-23. febrúar) skóla í febrúar sem og á starfsdögum skóla í Garðabæ.
Óskilamunir sem berast úr frístundabílunum er skilað í Miðgarð í lok hvers dags. Hægt er að ná í afgreiðsluna í Miðgarði í síma 550-2360.
Leiðakerfi skólaársins 2023-2024
Leið 1: Tveir bílar fara eina ferð fram og til baka frá Mýrinni til Barnaskóla Hjallastefnunnar með viðkomu í Tónlistarskóla Garðabæjar, Miðgarði og Ásgarði á hverjum 45 mínútum. Fyrsta ferð dagsins er frá Mýrinni kl. 14:15 og síðasta ferð frá Mýrinni er kl. 16:30.
Leið 2: Bíllinn hefur akstur við Urriðaholtsskóla kl. 14:05, kemur við í Barnaskóla Hjallastefnunnar á leið í Ásgarð í fyrstu ferð (v/fimleika) og stoppar í Ásgarði og TG. Bíllinn fer í Mýrina og Miðgarð eftir þörfum barnanna v/ knattspyrnu, handbolta og sundæfinga.
Leið 3: Bíll fer frá
Álftanesi með börn í frístundir fjórum sinnum á dag, fyrsti bíll er kl. 14:10. Bíllinn stoppar í Sjálandsskóla og heldur svo áfram í Ásgarð og Miðgarð með stoppum í TG og Mýrinni eftir þörfum.
Skráning í frístundabílinn er í gegnum Völu frístund og skráning hefst síðar í ágúst.
Aðrar fyrirspurnir má senda á karijo@gardabaer.is
Gjaldskrá
Ný gjaldskrá fyrir veturinn 2023-2024.
Tímabil: | |
Haustönn 2023 | kr. 8.800 |
Vorönn 2024 | kr. 11.950 |
Tímatafla haustönn 2023
Tímataflan sýnir mínútur yfir heila tímann. Fyrstu ferðir dagsins eru kl. 14.15 frá Mýrinni (leið 1), frá Urriðaholtsskóla kl. 14:05 (leið 2), kl. 14:10 frá Álftanesi (leið 3).
Stöð: | Ferðir |
Leið 1 | Einn hringur á 45 mín - 2 bílar í akstri |
Mýrin | 14:15/14:40/15:00/15:25/15:45/16:30 |
Tónlistarskólinn/Klifið | Eftir þörfum |
Ásgarður (auka stór bíll v/knattsp.hópa) | 14:25/14:50/15:10/15:35/15:55/16:40 |
Barnaskóli Hjallastefnunnar | 14:30/14:55/15:15/15:45/16:00/16:45 |
Miðgarður | 14:35/15:00/15:20/15:50/16:05/16:50 |
Tónlistarskólinn/Klifið | Eftir þörfum |
Ásgarður | 14:45/15:10/15:30/16:00/16:15/17:00 |
Leið 2 - Urriðaholt | |
Urriðaholtsskóli | 14:05/ 14:40/15:15/15:50 |
Barnaskóli Hjallastefnunnar /vegna fimleika ef þarf | 14:10 |
Miðgarður (eftir þörfum) | 14:12/14:45/15:20/15:55 |
Tónlistarskólinn (eftir þörfum) | |
Ásgarður | 14:25/14:55/15:30/16:05 |
Mýrin (handbolti og sund) | .../ 15:05/15:35/16:10 |
Miðgarður/
GKG útiæfingar (á leið frá Ásgarði) | 14:30/...../15:40/16:15 |
Leið 3 (Álftanes) | |
Álftanes v. frístundaheimili | 14:10/14:45/15:25 |
Sjáland | 14:20/14:55/15:35 |
Ásgarður (TG eftir þörfum) | 14:25/15:00/15:40 |
Mýrin (eftir þörfum) | ..../15:05/15:45 |
Miðgarður | 14:30/15:10/15:50 |
Miðgarður - Álftanes | Mán: 17:15 Þri 16:15 Mið 16:15/17:15 Fim 16:30 Fös 16:00 |
Látið bílstjórann sjá ykkur á biðstöðvunum.
Afdrep undan veðri er í anddyrum íþróttahúsa og frístundaheimila.